Gísli Engilbertsson (Hólshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Gísli Guðmundur Engilbertsson frá Hólshúsi við Bárustig 9, járnsmiður fæddist þar 24. ágúst 1940.
Foreldrar hans voru Engilbert Ármann Jónasson frá Efri-Kvíhólma u. Eyjafjöllum, verkamaður, verkalýðsleiðtogi, f. 28. febrúar 1906, d. 12. apríl 1987, og kona hans Ásta Rut Gunnarsdóttir frá Hólshúsi, húsfreyja, f. 26. janúar 1914, d. 22. desember 2000.

Börn Ástu Rutar og Engilberts:
1. Ingi Engilbertsson, f. 14. desember 1938 í Hólshúsi, d. 15. júní 2016.
2. Gísli Guðmundur Engilbertsson járnsmíðameistari, f. 24. ágúst 1940 í Hólshúsi. Fyrrum kona hans var Paula Michelsen frá Færeyjum. Kona hans Margrét Guðmundsdóttir.
3. Jónas Davíð Engilbertsson bifreiðastjóri, f. 26. júní 1946 í Hólshúsi, kvæntur Aðalheiði H. Jónsdóttur.
4. Ingvar Georg Engilbertsson starfsmaður Vita- og hafnarmálastofnunar, f. 23. nóvember 1954 á Sj.húsinu.

Gísli var með foreldrum sínum í æsku.
Hann lærði járnsmíði og öðlaðist meistararéttindi.
Þau Paula giftu sig 1962, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í Eyjum og Færeyjum, en skildu.
Þau Margrét giftu sig 1983. Þau bjuggu við Suðurbraut í Hafnarfirði.

I. Kona Gísla, (9. september 1962), er Paula Berghild Michelsen frá Færeyjum, f. 4. desember 1936.
Börn þeirra:
1. Eyjólfur Ásgeir Gíslason rafmagnsverkfræðingur, f. 26. apríl 1963 í Færeyjum.
2. Hannes Bragi Gíslason, með doktorspróf í eðlisfræði, f. 22. júlí 1965 í Eyjum.
3. Áslaug Gísladóttir þjóðháttafræðingur, f. 13. júní 1974.

II. Kona Gísla, (12. maí 1983), er Margrét Jónína Guðmundsdóttir myndlistarmaður, f. 2. september 1936. Foreldrar hennar voru Guðmundur Gissurarson kennari, bæjarfulltrúi, forstjóri í Hafnarfirði, f. 12. maí 1902, d. 6. júní 1958 og Ingveldur Gísladóttir húsfreyja, rithöfundur, f. 28. september 1913, d. 6. janúar 1996.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.