Eyjapistlar
Fara í flakk
Fara í leit
Fljótlega eftir upphaf eldsumbrotanna fóru Eyjapistlar í loftið, sér útvarpsþáttur fyrir Vestmannaeyinga. Þátturinn sem var í umsjón bræðrana Gísla og Arnþórs Helgasona var útvarp Vestmannaeyinga í gosinu. Þetta var 15 - 30 mínútna þáttur, sem sendur var út á 2 – 7 sinnum í viku á meðan gosið stóð yfir og nokkra mánuði þar á eftir. Í Eyjapistlum var fjallað um framgang eldgossins, sem og flest allt það sem varðaði málefni Vestmannaeyinga í Eyjum og á fastalandinu.