Drífa Vermundsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Drífa Vermundsdóttir frá Sunndal í Kaldrananeshreppi, Strand., húsfreyja, skólaliði fæddist þar 20. júní 1949 og lést 29. júní 2017.
Foreldrar hennar voru Vermundur Jónsson bóndi í Sunndal í Kaldrananeshreppi, bjó síðast í Hólmavíkurhreppi, f. 6. janúar 1897 á Bassastöðum við Hólmavík, d. 14. júní 1981, og kona hans Sigrún Hjartardóttir frá Ósi við Steingrímsfjörð, Strand., húsfreyja, f. 5. desember 1926, d. 29. september 2007.

Drífa var með foreldrum sínum.
Hún flutti til Eyja, vann í leikskóla og í verslun. Drífa varð síðar skólaliði.
Þau Elías giftu sig 1973, eignuðust 4 börn, en misstu fyrsta barn sitt nýfætt. Þau bjuggu í Grænuhlíð 8 við Gos, en síðast á Lækjarhjalla 34 í Kópavogi.
Drífs lést 2017.

I. Maður Drífu, (31. desember 1973), er Elías Björn Angantýsson frá Hlaðbæ, vélvirkjameistari, f. 20. ágúst 1948.
Börn þeirra:
1. Drengur, f. 1. ágúst 1972, d. 2. ágúst 1972.
2. Sara Elíasdóttir, viðskiptafræðingur, sérfræðingur, f. 8. mars 1974. Sambúðarmaður hennar Valgeir Bergmann Magnússon.
3. Sigrún Edda Elíasdóttir viðskiptafræðingur, vinnur að markaðsmálum, f. 7. september 1977. Maður hennar Baldur Snorrason.
4. Margrét Elíasdóttir starfsmaður við gistiþjónustu, f. 26. september 1982. Fyrrum sambúðarmaður hennar Daníel Petersen.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.