Blik 1951/Færðar þakkir, kvæði
Fara í flakk
Fara í leit
- Færðar þakkir.
Í Bliki 1950 birti Una Jónsdóttir skáldkona þrjú erindi til Heimaeyjar. Séra Sigtryggur Guðlaugsson að Núpi fær jafnan ritið sent. Í vetur sendi hann Gagnfræðaskólanum lag við þessi erindi skáldkonunnar og kann skólinn séra Sigtryggi alúðarfyllstu þakkir fyrir þá góðu gjöf.
Skáldkonan þakkaði séra Sigtryggi gjöfina með þessum erindum:
- Dyggan þjón sinn Drottinn geymi,
- dáðum prýddan fyr og síð.
- Hallar ævi hér í heimi,
- hugsum við um betri tíð.
- Ævikvöld þitt indælt veri,
- eilíf sælan bíður þín,
- Sigtryggur; með sannri gleði
- sú er kæra óskin mín.
- Dyggan þjón sinn Drottinn geymi,
- ÍSLAND
- Ísland yndislega,
- eyjan góða mín,
- ég ann þér alla vega,
- oft vil minnast þín.
- Þig ávallt blessi öll vor þjóð.
- Fram þig leiði föðurhönd,
- fóstra og móðir góð.
- Flestum fegri í heimi,
- fjalladrottning kær.
- Eld og ís þú geymir
- allmörg vötnin tær.
- Fagurt er þitt fossaskraut.
- Blessi Drottinn landsins lýð,
- lækni hverja þraut.
- Una Jónsdóttir.
- Flestum fegri í heimi,