Bergljót Birna Blöndal

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Bergljót Birna Blöndal, húsfreyja fæddist 11. júlí 1958 í Hfirði.
Foreldrar hennar Björn Lárusson Blöndal, f. 16. apríl 1931, d. 25. desember 1979, og Þórhalla Helga Þórhallsdóttir, f. 12. maí 1933, d. 12. maí 2024.

Þau Jóhann giftu sig 1979, eignuðust tvö börn. Þau búa við Austurveg 2.

I. Maður Bergljótar Birnu, (15. september 1979), er Jóhann Jónsson, verkstjóri, verksmiðjueigandi, umboðsmaður, forstöðumaður, f. 9. desember 1956.
Börn þeirra:
1. Auðbjörg Halla Jóhannsdóttir, með próf í spænsku frá Spáni, framhaldsskólakennari í Eyjum, f. 2. maí 1979. Maður hennar Hallgrímur Steinsson.
2. Hildur Jóhannsdóttir, skrifstofumaður, f. 26. júní 1984. Maður hennar Sindri Haraldsson.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Heimaslóð.
  • Íslendingabók.
  • Jóhann og Bergljót.
  • Valdaætt. Niðjatal Valda Ketilssonar bónda á Sauðhúsvöllum undir Eyjafjöllum og k.h. Katrínar Þórðardóttur. Magnea Árnadóttir. Handrit 1992.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.