Austurhlíð 3

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Í húsinu við Austurhlíð 3 sem byggt var á árunum 1965-1970 bjuggu hjónin Eiríkur Sigurjónsson og Sigrún Ólöf Karlsdóttir ásamt börnum sínum Sigurjóni Val, Rúnari Ingva, Margréti Heru og Eygló. Þau bjuggu í húsinu þegar byrjaði að gjósa 23. janúar 1973.


Heimildir

  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.
  • Húsin undir hrauninu, haust 2012.