Anton Örn Eggertsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Anton Örn Eggertsson, var matsveinn hjá fyrirtækinu ,,Gott“ í Eyjum og meðeigandi að Pizzugerðinni þar, rekur nú veitingastaðinn ,,Vöruhúsið“ í Eyjum.
Foreldrar hans Eggert Garðarsson, vélvirkjameistari, f. 3. febrúar 1957, d. 29. janúar 2016, og kona hans Svava Björk Johnsen Hlöðversdóttir, frá Saltabergi, húsfreyja, starfsmaður Hraunbúða, f. 7. ágúst 1959.

Börn Svövu og Eggerts:
1. Edda Björk Eggertsdóttir viðskiptafræðingur, vinnur hjá Samgöngustofu í Reykjavík, f. 28. mars 1976. Barnsfeður hennar Sumarliði Árnason og Jón Andri Finnsson. Sambúðarmaður Einar Örn Hreinsson.
2. Anton Örn Eggertsson matsveinn hjá fyrirtækinu Gott í Eyjum og meðeigandi að Pizzugerðinni þar, rekur nú veitingastaðinn ,,Vöruhúsið“ í Eyjum, f. 12. júní 1991. Sambýliskona hans Hildur Rún Róbertsdóttir.

Þau Hildur Rún hófu sambúð, hafa eignast tvö börn. Þau búa við Fjólugötu 13.

I. Sambúðarkona Antons Arnar er Hildur Rún Róbertsdóttir, húsfreyja, f. 23. september 1995.
Börn þeirra:
1. Helga Dögg Antonsdóttir, f. 1. mars 2021 í Rvk.
2. Hinrik Eddi Antonsson, f. 4. maí 2023 í Rvk.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.