Anna Theódórsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Anna Jórunn Theódórsdóttir frá Botni í Þorgeirsfirði, S.-Þing., húsfreyja fæddist þar 29. apríl 1899 og lést 18. febrúar 1987.
Foreldrar hennar voru Theódór Friðriksson sjómaður, verkamaður, rithöfundur, f. 27. apríl 1876, d. 8. apríl 1948, og kona hans Sigurlaug Jónasdóttir húsfreyja, f. 19. janúar 1870, d. 12. maí 1968.

Börn Sigurlaugar og Theódórs:
1. Anna Jórunn Theódórsdóttir húsfreyja, f. 29. apríl 1899, d. 18. febrúar 1987. Maður hennar Zophonías Jónsson.
2. Sesselja Magnúsína Theódórsdóttir. f. 9. nóvember 1900, d. 11. maí 1931 á Vífilsstöðum.
3. Þorbjörg Theódórsdóttir húsfreyja, f. 18. ágúst 1903, d. 28. mars 1932. Maður hennar Theódór Jónsson.
4. Elísabet Jónasína Theódórsdóttir húsfreyja, f. 27. nóvember 1907, d. 13. júní 1995. Maður hennar Rögnvaldur Bjarnason.
5. Kristján Valdimar Theódórsson verðlagseftirlitsmaður, f. 7. janúar 1912, d. 8. febrúar 1990. Kona hans Þórdís Aðalbjarnardóttir.
6. Theódór Friðrik Hjálmar Theódórsson, f. 12. september 1915, d. 26. maí 1997. Kona hans Stefanía Jónsdóttir.

Anna var með foreldrum sínum í æsku, í Rauðahúsi á Sauðárkróki 1910.
Þau Zophonías giftu sig 1924, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í fyrstu í Eyjum, síðan á Stokkseyri og á Eyrarbakka. Þau fluttu til Reykjavíkur 1931, bjuggu við Óðinsgötu, slitu samvistir um skeið, tóku saman að nýju og bjuggu í Kópavogi.
Zophonías lést 1984 og Anna 1987.

i. Maður Önnu, (22. nóvember 1924), var Zophonías Jónsson frá Bakka í Svarfaðardal, Ey., verkamaður, skrifstofumaður, f. 12. mars 1897, d. 2. desember 1984.
Börn þeirra:
1. Jón Sigtryggur Zophoníasson skýrsluvélafræðingur, f. 15. september 1925, d. 16. október 2005. Kona hans Heiður Gestsdóttir.
2. Sigurlaug Svanhildur Zophoníasdóttir iþróttakennari, f. 4. október 1929, d. 19. nóvember 2019. Maður hennar Gunnar R. Magnússon.
3. Sesselja Zophoníasdóttir húsfreyja, verkakona, f. 3. desember 1930, d. 31. maí 2017. Maður hennar Ólafur Jónsson.
4. Kristinn Björgvin Zophoníasson múrari, f. 4. desember 1936, d. 31. júlí 2022.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.