Anna Gísladóttir (Ofanleiti)
Fara í flakk
Fara í leit
Anna Gísladóttir vinnukona á Ofanleiti fæddist 1786 í Seli í A-Landeyjum og lést 14. mars 1824.
Foreldrar hennar voru Gísli Jónsson bóndi í Seli, síðar í Hlíðarendakoti, f. 1760 á Hámúla í Fljótshlíð, d. 7. mars 1832, og kona hans Steinvör Guðmundsdóttir húsfreyja frá Eystri-Skógum u. Eyjafjöllum, skírð 21. júní 1763, d. 19. apríl 1840.
Anna var með foreldrum sínum í Seli 1801 og í Hlíðarendakoti 1816.
Hún fluttist frá Hlíðarendakoti að Ofanleiti 1817 og var vinnukona þar til dd.
Anna var ógift og barnlaus í Eyjum.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Íslendingabók.is.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Manntöl.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.