Alexander Sigursteinsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Alexander Sigursteinsson bóndi, verslunarmaður fæddist 22. maí 1917 og lést 15. apríl 1996.
Foreldrar hans voru Sigursteinn Þorsteinsson skósmiður, kaupmaður, bóndi, f. 2. júní 1893, d. 26. júní 1996, og kona hans Ingibjörg Guðrún Vigfúsdóttir húsfreyja, f. 7. júlí 1879, d. 14. september 1942.

Alexander var bóndi í Djúpadal og stundaði jafnframt verslunarstörf hjá Kaupfélagi Rangæinga til ársins 1962, þá flutti fjölskyldan til Reykjavíkur og starfaði hann hjá Byggingavöruverslun Sambandsins þar til hann lét af störfum vegna aldurs.
Þau Guðrún giftu sig 1942, eignuðust tvö börn.

I. Kona Alexanders var Guðrún Helgadóttir frá Forsæti í V-Landeyjum, húsfreyja. Foreldrar hennar voru Helgi Bjarnason bóndi í Forsæti, f. 12. júlí 1888, d. 30. apríl 1959, og María Jónsdóttir, f. 21. október 1895, d. 18. júní 1972.
Börn þeirra:
1. Gunnar Alexandersson, f. 17. desember 1941.
2. Hafdís Alexandersdóttir, f. 15. mars 1949.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.