Þorlákur Sverrisson (Hofi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þorlákur Sverrisson kaupmaður á Hofi fæddist 3. apríl 1875 í Klauf í Meðallandi, V-Skaft. og lést 9. ágúst 1943.
Foreldrar hans voru Sverrir Magnússon bóndi í Nýjabæ, f. 7. febrúar 1823, d. 17. september 1908, og síðari kona hans Sigríður Jónsdóttir húsfreyja, f. 24. júní 1836, d. 4. ágúst 1929 í Eyjum.

Systkini Þorláks í Eyjum voru:
1. Jón Sverrisson yfirfiskimatsmaður, f. 22. janúar 1871 í Nýjabæ í Meðallandi, d. 5. mars 1968 í Reykjavík.
2. Rannveig Sverrisdóttir vinnukona, húsfreyja, f. 21. september 1872, d. 15. febrúar 1961.

Þorlákur var með foreldrum sínum í Klauf til 1882, í Efri-Ey (á Hóli) 1882-1883, í Klauf 1883-1884, í Efri-Ey 1884-1887, á Grímsstöðum 1887-1889. Hann var á Fagurhólsmýri 1889-1890, hjá foreldrum sínum á Grímsstöðum 1890-1899, í Skálmabæjarhraunum 1899-1902, húsmaður í Skálmarbæ 1902-1911, kaupmaður í Vík 1911-1925.
Þorlákur fékk tilsögn í ljósmyndun og tók m.a. myndir af Kötlugosinu 1918, sem þykja sumar dýrgripir og eru margar þeirra varðveittar hjá Jarðfræðideild Háskóla Íslands, í Ljósmyndasafni Íslands hjá Þjóðminjasafninu.
Fjölskyldan fluttist til Eyja 1925, bjó í fyrstu á Heiði, var komin að Hofi í lok árs 1925. Þorlákur var skráður verkamaður þar 1926, en hann rak nokkurn búskap. Hann var síðan kaupmaður.
Hann var kaupmaður í Turninum við Strandveg á móti Íshúsinu frá 1927-d.d. 1943.
Þau Sigríður giftu sig 1902, eignuðust þrjú börn. Þau voru húsfólk í Skálmarbæ 1902-1911, bjuggu í Vík 1911-1925, er þau fluttu til Eyja.
Þorlákur lést 1943 og Sigríður 1964.

I. Kona Þorláks, (17. ágúst 1902), var Sigríður Jónsdóttir frá Skálmarbæ í Álftaveri, V-Skaft., húsfreyja, f. þar 8. nóvember 1879, d. 23. febrúar 1964.
Börn þeirra:
1. Sigríður Guðrún Þorláksdóttir húsfreyja, kennari, forstöðukona, f. 13. apríl 1902 á Skálmabæjarhraunum í Álftaveri, d. 21. júní 1993.
2. Óskar Jón Þorláksson prestur, f. 5. nóvember 1906 í Skálmarbæ, d. 7. ágúst 1990.
3. Guðrún Þorláksdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 20. september 1920 í Vík, d. 13. október 2011.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Eiríkur Þ. Einarsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.