Þóra Þórarinsdóttir (Hásteinsvegi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Þórarinsdóttir frá Seyðisfirði, húsfreyja fæddist þar 4. mars 1906 og lést 5. janúar 1971.
Foreldrar hennar voru Þórarinn Þórarinsson bóndi , f. 14. febrúar 1858, d. 21. janúar 1950, og kona hans Ingigerður Hallsteinsdóttir húsfreyja, f. 12. júní 1869, d. 29. desember 1954.

Þóra var með foreldrum sínum á Eiríksstöðum í Seyðisfirði 1910 og 1920. Hún fluttist til Reykjavíkur, var kaupakona á Lágafelli í Mosfellssveit 1930.
Þau Eymundur giftu sig 1934, leigðu í Ásgarði við Heimagötu við giftingu og enn með Sigrúnu 1940, bjuggu á Hásteinsvegi 35 1942 og síðan, eignuðust Ingigerði þar 1942.
Þóra vann í Fiskiðjunni og hjá Ísfélaginu.
Eymundur lést 1970 og Þóra 1971.

I. Maður Þóru var Eymundur Guðmundsson sjómaður, verkamaður, f. 12. ágúst 1900 í Hrútafellskoti u. Eyjafjöllum, d. 26. maí 1970.
Börn þeirra:
1. Sigrún Reykjalín Eymundsdóttir húsfreyja, talsímakona, f. 29. september 1940 í Ásgarði.
2. Ingigerður Reykjalín Eymundsdóttir húsfreyja, hjúkrunarfræðingur, f. 1. mars 1942 á Hásteinsvegi 35.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.