Úr fórum Árna Árnasonar. Verk annarra/Formannavísur

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit




Úr fórum Árna Árnasonar


Formannavísur
frá Vestmannaeyjum frá árinu 1863
Höfundur ókunnur



Forspjallsorð:
1. Inn ég færi í óðarskrá
enginn mér það bannar
hér á vörum heyra má
heiti formannanna:
2. Stagaljóni stíga fer
stilltur meður rekkum
Magnús heitir málmagrér
maðurinn er frá Brekkum.
3. Lyndisþýður laglegur
laxa úti á Fróni
Gætinn Þorsteinn Guðmundsbur
græðis stýrir ljóni.
Um sama mann:
4. Af ufsamýri ýta fer,
og hans dýra mengi.
Milding stýrir málmagrér,
með órýru gengi.
5. Sitt má reyna sævarljón,
seggurinn lyndisglaði,
kannar hafið kaskur Jón
kenndur Úlfs við staði.
6. Áraljóni að Ufsalág
ýtir sinnisglaður,
hann Ólafur Hólmi frá
heppinn síldar maður.
7. Heppinn, djarfur, hugaður,
hranna stýrir goti,
það er Magnús Þórðarbur
þar frá Oddakoti.
8. Þorkell stýrir þóftuhest
þorska fram á láði.
Metinn hér af mönnum best
maðurinn sóma fjáði.
9. Afreksmaður orkustór
og með gilda drengi
Þorbjörn stýrir þóftujór
þarna fram á engi.
10. Heiðursmaður, happgefinn,
hann Sigurður lætur,
ára vaða elginn sinn
á Ægis troða dætur.
11. Tómas einnig telja má
traustan lista kappa.
Áraljóni að ufsalág
ýtir þrátt til happa.
12. Gunnlaugur er garpur ör,
gengur flest í haginn.
Sínum ýtir súðaknör
saltan útá æginn.
Sama vísa, snúin:
13. Gunnlaugur er garpur stór,
gengur allt í haginn.
Sínum byltir súðajór,
með Sveinbjörn prest á æginn.
14. Gottskálk stýrir gelti hlés
göfgum arfa rjóðum.
Ekki hræðist öldur vés,
úti á fiskislóðum.
15. Orkugildan árahund
ýta meður þýða.
Þakinn snilld um þorskagrund
Þórður lætur skríða.
16. Fírugan ég formann tel
firða meður raga.
Guðmundur á Gabríel
gjörir fiskinn draga.
17. Efnis maður iðs af kvon,
öldu fram á mýri,
hann Guðmundur Halldórsson,
hlunnafáki stýrir.
18. Fírugasti formaður,
félagsmaður besti,
Ossabæjar Ólafur,
ofurhugi mesti.
Eftirþankar:
19. Einn, sem leiðir alla um heim,
ei að láti dvína,
guð á hæðum gefi þeim
góða blessun sína.


Úr fórum Árna Árnasonar, efnisyfirlit