Úr fórum Árna Árnasonar. Ókunnur höfundur/Lítil vinarkveðja
Fara í flakk
Fara í leit
- Lítil vinarkveðja
- 1.
- Sof þú í friði
- sælt er þér að blunda
- eftir þinn annríka ævidag.
- Allt var þitt lífsstarf
- unnið með sóma
- allt fram á hinsta sólarlag.
- Vér minnumst, að konan merk og góð
- er mest, þegar lífið kallar
- á hjálp, og það kæra ljúflingsmál
- er lesið um byggðir allar:
- Hún mamma mín hlý við hlið mér stóð
- og hýr eins og blómið vallar.
- 2.
- Göfuga kona
- grætur þig og syrgir
- ástvinafjöld frá lífsins leið.
- Vermir þín minning
- vinanna hjörtu
- sem vorsól björt og himinheið.
- Hún, sem að aldin hér í dag
- sér hallar að foldar barmi
- með stjórnsemi margra styrkti hag
- og studdi með traustum armi.
- Er silfrað var hár um sólarlag
- hún sveif burt með bros á hvarmi.
- 3.
- Á þessum hólma
- áður stóð þín vagga,
- hér mun og gróa þín gröf í ró
- eftir hið þunga
- andstreymi lífsins,
- þú hefir öðlast hvíld og fró.
- Þín greiðvikni margra gladdi brár
- og góðgerðir þakkarverðar,
- þú vaktir svo mörgum vonir, þrár
- af vilja og ástúð gerðar.
- Við þökkum þér Björg mín öll þín ár
- og óskum þér góðrar ferðar.
- 4.
- Hugþekka vina
- hjartkæra móðir
- hjá þínu leiði við krjúpum klökk.
- Nú þér við sendum
- sorgblíða kveðju
- með innilegri ástarþökk.