Úr fórum Árna Árnasonar. Ókunnur höfundur/Færeyski konsúllinn í Vinnslustöðinni
Fara í flakk
Fara í leit
- Úr fórum Árna Árnasonar
- Færeyski konsúllinn í Vinnslustöðinni
- Á Heimalandi skeði margt á vertíðinni í vetur,
- sem verðugt er að geyma vel og færa það á letur.
- Menn heyra það á símanum og sjá oft öðrum betur,
- að stundum gerast ævintýri í bröggum út í bæ,
- því margt er þar af meyjum
- frá meginlandi og Eyjum
- og mikið fegri Torshavn jentur en ég orðað fæ,
- sem dansa vikivaka
- og viský sjússa taka;
- þær virðast ávallt tilbúnar í dingeling og hæ.
- Það reyndist mikið vandastarf að vernda þennan skara,
- því vermenn allir heimtuðu í kvennabúrin fara
- og til þess átti hvorki vín né bílskrjóðana að spara,
- en stela bragga jentunum og keyra út í hraun.
- En vinnsluhúsin vöktu
- og vermenn burtu hröktu
- og varðmenn settu í búrin öll, sem unnu þar á laun.
- Þeir gægðust inn um glugga
- og gættu að hverjum skugga,
- en gerð var inni freisting stór og mikil karlmannsraun.
- Verkstjórarnir kunnu ráð að venja þessa kóna
- og vernda sínar ungmeyjar, — þeir máluðu af þeim skóna
- í kvennabúra göngunum, og ráku úr vinnu róna, —
- sem rápuðu á grænum skóm í vinnu og matarsal.
- Og menn til meðlags kröfðu
- til meyja, sem að höfðu
- mest af einni nóttu tínt sér ber í Herjólfsdal
- við eldspýtur, og annað,
- sem er í myrkri bannað;
- þær brenndust margar píurnar við eld og næturhjal.
- Vinnslustöðin ákvað loks eitt embætti að stofna
- og skipa í það mann, sem kunni á prímusa og ofna.
- Hann átti að passa stelpurnar og mátti varast sofna,
- en síma strax til Hadda, ef að eitthvað bjátaði á.
- Og Kristófer var valinn
- til verks og konsúll talinn;
- hann kunni tök á prímusum og hverri meyjarþrá
- og þekkti fram til þessa
- að þjóna vel og messa
- og þurfti engar leiðbeiningar annarsstaðar frá.
- Það var eitt kvöld í janúar þær færeyisku fengu
- að fara á ball og lofuðu að plata Kidda í engu.
- En heima sátu hrundir tvær, sem eftir honum gengu
- og gældu við hann blítt og sætt; þær voru á undirkjól.
- Þær kitluðu hann Kidda,
- því kalt var úti og slydda,
- Ó, kom u gái Kidda minn til bóls fra hesum stól,
- ti varma skal vit fáa
- og vera í kojen lága.
- já, Vinnslustöðvarkonsúllinn með baukinn fór á ról.