Örn Stefánsson
Örn Stefánsson skrifstofumaður fæddist 4. júlí 1966.
Foreldrar hans Stefán Sigfús Stefánsson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, aflakóngur, framkvæmdastjóri, f. 16. september 1930, d. 20. nóvember 2015, og kona hans Vilborg Ragnhildur Brynjólfsdóttir húsfreyja, f. 27. desember 1930.
Börn Vilborgar og Stefáns:
1. Stefán Sigfús Stefánsson verkefnastjóri hjá Eimskip í Reykjavík, f. 14. júlí 1956. Kona hans Þórunn Gyða Björnsdóttir.
2. Sigurfinna Stefánsdóttir, f. 22. september 1957, d. 8. maí 1964.
3. Brynjólfur Þór Stefánsson, f. 11. júlí 1964 stýrimaður hjá Þorbirni hf. í Grindavík. Barnsmóðir hans Helena Olsen. Kona hans Ingunn Guðný Þorláksdóttir.
4. Valur Stefánsson framkvæmdastjóri hjá Vöku í Reykjavík. Hann býr á Selfossi, f. 4. júlí 1966. Kona Heiðbjört Haðardóttir.
5. Örn Stefánsson skrifstofustjóri hjá Eimskip á Akureyri, f. 4. júlí 1966. Kona hans Dóra Bryndís Hauksdóttir.
Sonur Stefáns með Guðbjörgu Magnúsdóttur, f. 29. nóvember 1927, d. 26. nóvember 2013:
6. Magnús Sturla Stefánsson sjómaður á Seyðisfirði, f. 12. ágúst 1952. Kona hans Lilja Kristinsdóttir, látin.
Þau Dóra Bryndís giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa á Akureyri.
I. Kona Arnar er Dóra Bryndís Hauksdóttir úr Hörgársveit í Eyjafirði, húsfreyja, stuðningsfulltrúi í skóla, f. 24. ágúst 1966. Foreldrar hennar Marta Gestsdóttir, f. 3. október 1940, d. 1. október 2024, og Haukur Steindórsson, f. 11. janúar 1940, d. 3. nóvember 2016.
Barn þeirra:
1. Haukur Þór Arnarson, f. 2. október 1993.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Örn.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.