Óli Ísfeld Traustason
Óli Ísfeld Traustason, býr í Oregon í Bandaríkjunum, augnskurðlæknir, fæddist 6. október 1945 að Hásteinsvegi 9.
Foreldrar hans voru Trausti Jónsson frá Mörk við Hásteinsveg, verslunarmaður, bifreiðastjóri, útgerðarmaður, kirkjugarðsvörður, f. 11. janúar 1917, d. 2. janúar 1994, og kona hans Ágústa Haraldsdóttir frá Garðshorni, húsfreyja, f. 14. ágúst 1919, d. 27. desember 1989.
Börn Ágústu og Trausta:
1. Haraldur Traustason skipstjóri, útgerðarmaður, f. 22. nóvember 1939 í Garðshorni, d. 13. júní 1993. Kona hans er Edda Tegeder.
2. Jón Steinar Traustason, f. 3. desember 1941 á Hásteinsvegi 9, d. 24. febrúar 2018, ókv., barnlaus.
3. Ágústa Traustadóttir húsfreyja, f. 12. febrúar 1943 á Hásteinsvegi 9. Maður hennar Guðmundur Birnir Sigurgeirson.
4. Brynja Traustadóttir húsfreyja, f. 27. ágúst 1944 á Hásteinsvegi 9. Fyrrum maður hennar Guðmundur Stefánsson. Maður hennar, er Sigurður Hafsteinsson.
5. Óli Ísfeld Traustason læknir, f. 6. október 1945 á Hásteinsvegi 9. Hann býr í Bandaríkjunum. Kona hans Bonnie Harvey.
6. Steinunn Traustadóttir húsfreyja, f. 14. desember 1948 á Hásteinsvegi 9. Fyrrum maður hennar Skarphéðinn H. Einarsson.
7. Ásta Traustadóttir húsfreyja, f. 26. október 1950 á Hásteinsvegi 9. Maður hennar Sigurður Stefánsson.
8. Trausti Ágúst Traustason, f. 19. mars 1952 á Sjúkrahúsinu, d. 31. október 1969.
Þau Bonnie giftu sig, eignuðust tvö börn.
I. Kona Óla Ísfeld er Bonnie Harvey, húsfreyja, lögfræðingur, fasteignasali, f. 6. júní 1947.
Börn þeirra:
1. Kristine Elisabeth Traustason, f. 12. nóvember 1973
2. Sara Lynn Traustason, f. 8. mars 1976.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Brynja.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.