Ólöf Rún Sigurjónsdóttir
Ólöf Rún Sigurjónsdóttir, verkfræðingur, verkefnastjóri fæddist 12. október 1989 í Eyjum.
Foreldrar hennar Sigurjón Sigurjónsson, verkstjóri, f. 29. desember 1958, og Erna Ólöf Óladóttir, húsfreyja, útgerðarmaður, f. 7. apríl 1963.
Börn Ernu og Sigurjóns:
1. Eyrún Sigurjónsdóttir, f. 9. mars 1981 í Eyjum.
2. Valgerður Sigurjónsdóttir, f. 6. júlí 1982 í Eyjum.
3. Ólöf Rún Sigurjónsdóttir, f. 12. október 1989 í Eyjum.
4. Jóna Rán Sigurjónsdóttir, f. 12. október 1989 í Eyjum.
Þau Sveinn giftu sig, hafa eignast þrjú börn. Þau búa í Kópavogi.
I. Maður Ólafar Rúnar er Sveinn Friðriksson, rafvirki, f. 11. október 1989.
Börn þeirra:
1. Guðrún Sveinsdóttir, f. 25. október 2015.
2. Sævar Óli Sveinsson, f. 18. maí 2019.
3. Ylfa Eldey Sveinsdóttir, f. 14. desember 2022.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Ólöf Rún.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.