Ívar Sigurbergsson (Skólavegi 6)
Ívar Sigurbergsson grunnskólakennari, tónlistarkennari fæddist 7. júlí 1963.
Foreldrar hans voru Sigurbergur Hávarðsson rafeindavirki, f. 12. nóvember 1927, d. 30. ágúst 2015, og kona hans Anna Petrína Ragnarsdóttir húsfreyja, síðar kaupmaður í Rvk, f. 30. september 1930, d. 3. nóvember 1921.
Börn Önnu og Sigurbergs:
1. Eyþór Sigurbergsson rafeindavirki í Noregi, vinnur ýmis tæknistörf, f. 2. ágúst 1954. Kona hans Turid Lismoen.
2. Ómar Sigurbergsson húsgagnasmiður, húsgagna- og innanhússarkitekt, f. 26. september 1958. Fyrrum kona hans Dagbjört Guðmundsdóttir. Kona hans Sif Gunnarsdóttir.
3. Ívar Sigurbergsson tónlistarkennari, f. 7. júlí 1963. Kona hans Auður Ögmundsdóttir.
4. Edda Sigurbergsdóttir fjármálastarfsmaður, f. 3. ágúst 1965. Fyrrum eiginmaður Sævar Guðmundsson.
5. Ester Sigurbergsdóttir hjúkrunarfræðingur, f. 1. ágúst 1968. Fyrrum sambúðarmaður hennar Oddsteinn Björnsson. Maður hennar Anton Guðmundsson.
Þau Auður Elín giftu sig, eignuðust eitt barn. Þau búa í Kópavogi.
I. Kona Ívars er Auður Elín Ögmundsdóttir úr Keflavík, kennari, f. 2. júní 1959. Foreldrar hennar Ögmundur Guðmundsson, f. 1. mars 1928, d. 10. febrúar1990, og Emilía Ósk Guðjónsdóttir, f. 3. mars 1935, d. 23. ágúst 2023.
Barn þeirra:
1. Birgir Ívarsson, f. 11. ágúst 2000.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Heimaslóð.
- Íslendingabók.
- Ívar.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.