Ísleifur Pálsson (Landlyst)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ísleifur Pálsson trésmíðanemi og sjómaður í Landlyst fæddist 6. apríl 1829 á Blómsturvöllum í Fljótshverfi, V-Skaft., og drukknaði 6. mars 1852.
Foreldrar hans voru Páll Jónsson bóndi á Blómsturvöllum, en síðast á Arnardrangi í Landbroti, f. 11. desember 1792 á Eystri-Lyngum í Meðallandi, d. 7. maí 1874, og fyrsta kona hans Guðlaug Jónsdóttir húsfreyja, f. 27. júní 1789 á Fossi á Síðu, d. 23. nóvember 1839 í Arnardrangi.

Páll faðir Ísleifs var sonur sr. Jóns Jónssonar og bróðir sr. Jóns Austmanns á Ofanleiti, og afi Ólafs Ó. Lárussonar héraðslæknis.

Ísleifur var með foreldrum sínum til ársins 1830, var tökubarn á Núpstað í Fljótshverfi 1830-1850.
Hann fluttist til Eyja 1850 og var trésmíðasveinn í Landlyst.
Hann fórst 1852 með Þórarni Hafliðasyni mormónapresti og tveim öðrum í veiðiför.
Þeir sem fórust voru:
1. Þórarinn Hafliðason formaður, f. 1. október 1825..
2. Ingimundur Einarsson fyrirvinna í Ömpuhjalli.
3. Ísleifur Pálsson trésmíðanemi í Landlyst, f. 16. apríl 1829.
4. Kolbeinn Ófeigsson trésmíðanemi í Landlyst, f. 28. janúar 1827, d. 6. mars 1852.
Ísleifur var ókvæntur og barnlaus í Eyjum.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.