Ægir Páll Friðbertsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ægir Páll Friðbertsson viðskiptafræðingur, framkvæmdastjóri Ísfélagsins, síðan framkvæmdastjóri Iceland Seafood í Rvk, fæddist 11. júní 1966.
Foreldrar hans Friðbert Halldórsson, f. 29. september 1919, d. 18. júlí 2007, og Kristjana Magnea Jónatansdóttir, f. 23. desember 1927, d. 24. janúar 2019.

Þau Hulda giftu sig, eignuðust fjögur börn. Þau skildu.

I. Fyrrum kona Ægis Páls er Hulda Pétursdóttir úr Ólafsvík, húsfreyja, f. 13. júlí 1966.
Börn þeirra:
1. Anna Kristín Ægisdóttir, f. 5. janúar 1984.
2. Tómas Ari Ægisson, f. 5. mars 1998.
3. Kristjana Ósk Ægisdóttir, f. 4. nóvember 1999.
4. Hjörtur Már Ægisson, f. 4. nóvember 1999.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.