Ásta Bárðardóttir (kennari)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ásta Bárðardóttir húsfreyja, jógakennari, kennari, deildarstjóri í Dalsskóla í Rvk fæddist 29. október 1961.
Foreldrar hennar Bárður Auðunsson skipasmíðameistari, f. 2. nóvember 1925, d. 10. desember 1999, og kona hans Ebba Þorsteinsdóttir húsfreyja, sjúkrahússstarfsmaður, f. 19. maí 1927, d. 14. október 1987.

Börn Ebbu og Bárðar:
1. Steinunn Bárðardóttir, húsfreyja og dagmóðir, lærð hárgreiðslukona, f. 12. september 1949. Maki: Ísak Möller rekstrarstjóri.
2. Herjólfur skipasmíðameistari, f. 29. mars 1953. Kona hans er Ragnhildur Mikaelsdóttir húsfreyja frá Húsavík
3. Auður Bárðardóttir geðhjúkrunarfræðingur, f. 6. ágúst 1956. Maki: Þröstur Björgvinsson sálfræðingur.
4. Elínborg Bárðardóttir læknir, f. 26. maí 1960. Maki: Ólafur Þór Gunnarsson læknir.
5. Ásta Bárðardóttir kennari, f. 29. október 1961. Maki: Páll Kolka Ísberg bankamaður, skilin.

Þau Páll giftu sig, eignuðust þrjú börn. Þau skildu.

I. Fyrrum maður Ástu er Páll Kolka Ísberg bankamaður, f. 9. mars 1958. Foreldrar hans Ari Guðbrandur Ísberg, f. 16. september 1925, d. 27. júní 1999, og Halldóra Kolka Ísberg, f. 3. september 1929, d. 20. september 2007.
Börn þeirra:
1. Auður Kolka Ísberg Pálsdóttir, f. 26. ágúst 1989.
2. Ari Páll Ísberg Pálsson, f. 25. janúar 1992.
3. Ebba Björg Ísberg Pálsdóttir, f. 6. maí 1999.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.