Árni Þorleifsson (Miðhúsum)
Fara í flakk
Fara í leit
Árni Þorleifsson frá Hólmum í A-Landeyjum, vinnumaður á Miðhúsum, fæddist 19. janúar 1808 og lést 4. maí 1837.
Foreldrar hans voru Þorleifur Árnason bóndi í Hólmum, f. 2. ágúst 1789, drukknaði 4. júní 1833, og kona hans Kristín Hreinsdóttir húsfreyja, f. 1781, d. 2. apríl 1852.
Árni mun hafa flust að Miðhúsum 1837 og lést á því ári úr landfarsótt.
Heimildir
- Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
- Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
- Prestþjónustubækur.
Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.