Ágústína Einarsdóttir (Helgahjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Ágústína Einarsdóttir frá Helgahjalli, húsfreyja í Utah fæddist 9. ágúst 1878 í Helgahjalli og lést 3. maí 1957 í Spanish Fork í Utah.
Foreldrar hennar voru Einar Jónsson smiður og mormónatrúboði, f. 16. ágúst 1839 á Sámsstöðum í Fljótshlíð, d. 25. maí 1900 í Eyjum, og fyrsta kona hans Guðrún Jónsdóttir húsfreyja í Helgahjalli, síðar í Utah, f. 24. júlí 1849, d. 8. maí 1931.

Hálfbróðir Guðrúnar, sammæddur, var Sigurður Þorleifsson húsasmíðameistari í Utah, nefndi sig Sigurd Thor Leifson, f. 20. september 1859, d. 8. mars 1922 í Utah.

Ágústína var með foreldrum sínum í Helgahjalli og fór með þeim og Jóhönnu systur sinni til Utah 1880.
Hún giftist Guðmundi Þorsteinssyni frá Landlyst, járnbrautarstarfsmanni í Utah, f. 8. október 1867 í Sjólyst, d. 13. mars 1933 í Spanish Fork í Utah.
Börn þeirra:
1. Earl Theodór, f. 1899.
2. Goodman Thorstein, f. 1900.
3. Altin Einar, f. 1902.
4. Mathilda Alice, f. 1907.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Magnús Haraldsson.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Saga Íslendinga í Vesturheimi I-V. Þorsteinn Þ. Þorsteinsson, Tryggvi J. Oleson. Winnipeg: Þjóðræknisfélag Íslendinga í Vesturheimi: Menningarsjóður 1940-1953.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.