Þórarinn Sigurjónsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 11. ágúst 2005 kl. 16:00 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 11. ágúst 2005 kl. 16:00 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

F. í Sætúni í Vestmannaeyjum 26. júlí 1923. For.: Sigurjón Árnason (f. 17. apríl 1891, d. 29. júlí 1986) bóndi og trésmiður að Pétursey í Mýrdal og k. h. Sigríður Kristjánsdóttir (f. 13. maí 1884, d. 16. febr. 1941) húsmóðir. K. (4. júní 1952) Ólöf Ingibjörg Haraldsdóttir (f. 8. júlí 1931) húsmóðir. For.: Haraldur Jóhannesson og k. h. Kristín Sveinsdóttir. Börn: Sigríður (1953), Haraldur (1954), Kristín (1956), Ólafur Þór (1965).

Þórarinn Sigurjónsson, alþingsmaður.

Búfræðipróf Hvanneyri 1943.

Stundaði ýmis störf, svo sem smíðar, pípulagnir, vélaviðgerðir, bifreiðaakstur, og vann við búskap. Bústjóri tilraunabús Búnaðarsambands Suðurlands í Laugardælum frá stofnun þess 1952 til ársloka 1979.

Í stjórn Sambands eggjaframleiðenda 1956 og formaður þess 1957—1979. Í stjórn Verkstjórafélags Suðurlands 1956, formaður 1958—1974. Í stjórn Verkstjórasambands Íslands 1963—1975. Sýslunefndarmaður Hraungerðishrepps 1959—1985. Í stjórn Kaupfélags Árnesinga 1962—1992, formaður frá 1966. Stjórnarformaður Húsmæðraskóla Suðurlands frá 1964. Í stjórn Meitilsins hf., Þorlákshöfn, 1964—1992. Í stjórn Sambands íslenskra samvinnufélaga 1968— 1992. Formaður kjördæmissambands Framsóknarflokksins í Suðurlandskjördæmi 1970—1974, áður gjaldkeri þess. Sat á þingi Alþjóðaþingmannasambandsins 1977—1985. Í stjórn Framkvæmdastofnunar ríkisins 1980—1983. Formaður Þingvallanefndar 1980—1988. Í Veiðimálanefnd ríkisins og formaður hennar 1987—1992. Formaður sauðfjársjúkdómanefndar 1987—1992.

Alþm. Suðurl. 1974— 1987 (Framsfl.).


Heimildir