Þrídrangar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 13:33 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2005 kl. 13:33 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þrídrangar eru í raun fjórir drangar, sem standa um 10km vestur af Heimaey. Stóridrangur eða Háldrangur sem er stærstur, um 40 m hár og gróðurlaus. Örskammt frá Stóradrang er Þúfudrangur og Klofadrangur og sá fjórði er líklega nafnlaus.

Eyjamenn fóru ekki oft út í Þrídranga sökum þess hversu langt er að fara, en Austur-Landeyingar fóru gjarnan þangað til þess að nýta söl og stunda selveiði.

Árið 1939 var reistur viti á Stóradrangi, og þyrlupallur var reistur þar nokkrum árum síðar.