Þjóðhátíðarlag (1982)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júlí 2006 kl. 11:22 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júlí 2006 kl. 11:22 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1981 1982 1983
Höldum hátíð í Herjólfsdal
þeim hrífandi fjallasal,
er geymir vor ljúfustu leyndarmál
og lifir fagur í vorri sál.
Myndin sem mest á ber
og meitluð í hjartað er,
sýnir húmið létt, læðast um hlíðar og dal,
sig hjúfrar að meyju og hal.
Hvar sem er, hvar sem Eyjamaður fer,
á dalurinn hluta í hjarta hans,
honum hlýnar þegar hann minnist hans.
Hann dreymir um hátíð í Herjólfsdal,
þeim hrífandi fjallasal,
er geymir hans ljúfustu leyndarmál
og lifir fagur í hans sál.
Lag: Sigurjón Ingólfsson
Texti: Snorri Jónsson