Ársæll Sveinsson (Fögrubrekku)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júlí 2006 kl. 08:56 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júlí 2006 kl. 08:56 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ársæll Sveinsson, Fögrubrekku fæddist 31. desember 1893 í Vestmannaeyjum og lést 14. apríl 1969. Foreldrar hans voru Sveinn Jónsson trésmíðameistari og Guðrún Runólfsdóttir. Kona hans var Laufey Sigurðardóttir.

Ársæll Sveinsson

Ársæll var útgerðarmaður frá árinu 1912 og var formaður í fjöldamörg ár á eigin bátum. Ársæll var stofnandi Skipasmíðastöðvar Vestmannaeyja árið 1940 og rak umfangsmikla timburverslun og fiskverkun. Ársæll var auk þess forseti bæjarstjórnar 1954-1962. Ársæll var kjörinn heiðursborgari í Vestmannaeyjum er hann varð sjötugur 31. desember 1963.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.