„Vigfús Magnússon (Hólshúsi)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
m (Verndaði „Vigfús Magnússon (Hólshúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 22. apríl 2014 kl. 22:22

Vigfús Magnússon sjómaður í gömlu Presthúsum og síðar í Hólshúsi fæddist 9. október 1815 og lést 25. febrúar 1869.
Faðir hans var Magnús bóndi á Snotru og Bryggjum í A-Landeyjum, f. 28. október 1792 í Búðarhóls-Austurhjáleigu (Hólavatni), d. 26. janúar 1856 á Bryggjum, Vigfússon bónda í Búðarhóls-Austurhjáleigu (Hólavatni) og víðar í A- og V-Landeyjum, f. 1749, d. 27. febrúar 1813, Magnússonar bónda á Kirkjulandi í A-Landeyjum, f. í árslok 1702, á lífi 1763, Ólafssonar, og konu Magnúsar á Kirkjulandi, Kristínar húsfreyju, f. 1712, d. 18. desember 1809, Jónsdóttur.
Móðir Magnúsar á Snotru og kona Vigfúsar bónda var Guðlaug húsfreyja, f. 1754, d. 5. júní 1820, Jónsdóttir bónda á Vindási á Landi, f. 1727, d. 12. febrúar 1787, Bjarnasonar, og konu Jóns á Vindási, Ástríðar húsfreyju, f. 1729, d. 28. nóvember 1785, Jónsdóttur.

Móðir Vigfúsar í Hólshúsi og kona Magnúsar á Snotru, var Guðrún húsfreyja, f. 1781 í Vatnshól í A-Landeyjum, d. 6. nóvember 1860 á Bryggjum, Ólafsdóttir bónda á Snotru, f. 1735, d. 27. nóvember 1813 á Snotru, Magnússonar bónda á Kirkjulandi, f. í árslok 1702, á lífi 1763, Ólafssonar, og konu Magnúsar á Kirkjulandi, Kristínar húsfreyju, f. 1712, d. 18. desember 1809, Jónsdóttur.
Móðir Guðrúnar húsfreyju á Snotru og kona Ólafs bónda Magnússonar var Sigríður húsfreyja, f. 1746 í Álfhólahjáleigu í V-Landeyjum, d. 31. júlí 1823, Sigurðardóttir bónda, smiðs og formanns á Búðarhóli í A-Landeyjum, f. 1702, d. 29. maí 1783 í Þerney í Kollafirði, Þorkelssonar, og konu Sigurðar á Búðarhóli, Margrétar húsfreyju, f. 1709, á lífi 1745, Guðmundsdóttur.

Vigfús var með foreldrum sínum á Bryggjum a.m.k. til 1850. Hann var húsbóndi á Kirkjubæ 1860 með Guðrúnu og drengjunum Sigurði og Magnúsi.
Þau bjuggu síðar í gömlu Presthúsum og tómthúsinu Hólshúsum og þar voru þau til húsa, er Vigfús lést af vosbúð á skipinu „Ægi“ í Útilegunni miklu 25. febrúar 1869.
(Sjá Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum: Útilegan mikla.

Vigfús var albróðir Sigríðar Magnúsdóttur húsfreyju á Bryggjum í A-Landeyjum, síðar húsfreyju í Brekkuhúsi.

Kona Vigfúsar í Hólshúsi var Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1. janúar 1827, d. 13. maí 1882.
Börn Vigfúsar og Guðrúnar í Hólshúsi hér:
1. Sigurður Vigfússon, (Siggi Fúsa) á Fögruvöllum, f. 29. mars 1851, d. 3. nóvember 1934.
2. Magnús Vigfússon sjómaður og landverkamaður í Presthúsum, f. 1. október 1854, d. 13. ágúst 1926.
3. Kristín Vigfúsdóttir, f. 9. mars 1861, d. 3. september 1889.


Heimildir