„Vestmannaeyjabær“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
m
mynd
Ekkert breytingarágrip
m (mynd)
 
(39 millibreytingar ekki sýndar frá 7 notendum)
Lína 1: Lína 1:
[[Mynd:Herjolf1.JPG|thumb|380px|right|Vestmannaeyjabær með Herjólf koma í höfn.]]
[[Mynd:Herjolf1.JPG|thumb|350px|right|''„Víst er fagur Vestmannaeyjabær, vinaleg er einnig Heimaey,“'' segir í laginu. [[Herjólfur]] siglir inn innsiglinguna í blíðskaparveðri.]]
 
== Landnám og fyrstu aldir ==
Í upphafi [[landnám]]s komu Vestmannaeyjar fyrst við sögu, en þá flýðu þrælar Hjörleifs, fóstbróður Ingólfs Arnarsonar, til Eyja eftir að hafa drepið Hjörleif og fylgdarlið hans. Þá segir í Landnámu að [[Herjólfur Bárðarson (landnemi)|Herjólfur Bárðarson]] hafi fyrstur manna numið land í Vestmannaeyjum um 900.
 
[[Gissur hvíti]] og [[Hjalti Skeggjason]] reistu kirkju á [[Hörgaeyri]], sunnan við [[Heimaklettur|Heimaklett]], í kringum árið 1000 og var það fyrsta kirkja sem byggð var á Íslandi.
 
Vestmannaeyjar voru í bændaeign fram  á 12. öld er þær komust í eigu Skálholtsstóls. Í byrjun 15. aldar verða þær síðan eign Danakonungs.
 
Árið 1609 urðu Vestmannaeyjar sérstök sýsla og árið 1874 ríkiseign.
 
Árið 1627 réðust [[Tyrkjaránið|sjóræningjar]] á land í Eyjum og rændu 242 íbúa og drápu 36. Í Vestmannaeyjum bjuggu um 500 manns á þessum tíma, aðeins 200 manns sluppu undan árásinni. Af þeim, sem seldir voru til þrælkunar í Algeirsborg, komu aðeins 22 aftur til Eyja.
 
Í [[Jarðabók Árna Magnússonar|Jarðabók Árna Magnússonar]] frá 1703 eru íbúar í Vestmannaeyjum taldir 318. Á 18. öld fækkaði þeim heldur, og um aldamótin 1800 bjuggu aðeins 173 í Eyjum.
 
[[Mynd:Vestmannaeyjar um 1930.jpg|thumb|350px|left|Vestmannaeyjabær um 1930.]]
[[Mynd:Horft af Heimakletti 1953.jpg|thumb|350px|left|Vestmannaeyjabær um 1953]]
Meðan konungsútgerð og útgerð einokunarkaupmanna hélst við lýði voru Eyjamenn skyldaðir til að róa á dönskum skipum. Þegar einokuninni lauk áttu eyjaskeggjar því engin vertíðarskip og þau skip sem fyrir voru í Vestmannaeyjum seld. Lítið var því um útgerð á 19. öldinni, en gerðar voru tilraunir til þilskipaútgerðar á seinni hluta aldarinnar. Þær tilraunir gengu ekki vel.
 
[[Vélbátaútgerð]] hófst upp úr 1906 og fjölgaði vélbátum ört á næstu árum. Árið 1912 voru 58 vélbátar, sem reru frá Vestmannaeyjum sem þá voru orðnar stærsta verstöð á landinu. Óhætt er að segja fiskveiðar og fiskvinnsla, ásamt þjónustu við sjávarútveginn, hafi upp frá því verið burðarás atvinnulífs í Vestmannaeyjum. Með tilkomu vélbátaútgerðar margfaldaðist íbúafjöldi Eyjanna úr 550 manns árið 1900 í 2.033 árið 1918.
 
== Vestmannaeyjar verða kaupstaður ==
Árið 1918 fengu Vestmannaeyjar kaupstaðarréttindi og kusu Eyjamenn sína [[Fyrsta bæjarstjórn Vestmannaeyja|fyrstu bæjarstjórn]] 16. janúar 1919. Þá voru Eyjamenn orðnir rúmlega 2.000 og síðasti áratugurinn verið með gullgrafarabrag.  
 
== Deildir bæjarins ==
Vestmannaeyjabær starfrækir ýmsar deildir og stofnanir:
 
* [[Fjölskyldu- og fræðslusvið Vestmannaeyjabæjar]]
* [[Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar]]
* [[Stjórnsýslu- og fjármálasvið Vestmannaeyjabæjar]]
* [[Þjónustumiðstöð Vestmannaeyja]] — Sér um viðhald og aðra þjónustu fyrir bæinn.
* [[Náttúrugripasafn Vestmannaeyja|Fiska- og Náttúrugripasafn Vestmannaeyja]]
* [[Bókasafn Vestmannaeyja]]
* [[Byggðasafn Vestmannaeyja]]
* [[Hraunbúðir]] — Dvalarheimili aldraðra
* [[Leikfangasafn Vestmannaeyja]]
* [[Kertaverksmiðjan|Kertaverksmiðjan Heimaey]] — Verndaður vinnustaður.
* [[Félagsheimili Vestmannaeyja]]
* [[Íþróttamiðstöðin|Íþróttamiðstöð Vestmannaeyja]]
* [[Náttúrustofa Suðurlands]]
* [[Héraðsskjalasafn Vestmannaeyja]]
* [[Athvarfið]]
* [[Sambýlið]]
* [[Dag- og skammtímavistun|Skammtímavistunin Búhamri 17]]
* [[Slökkvilið Vestmannaeyja]]
* [[Malbikunarstöð Vestmannaeyja]]
* [[Sorpeyðingarstöð Vestmannaeyja]]
* [[Nýsköpunarstofa Vestmannaeyja]]
* [[Vinnuskólinn]]
 
 
== Sjá einnig ==
* [[Bæjarstjórn]]
* [[Íbúafjöldi í Vestmannaeyjum]]
 
[[Flokkur:Um Vestmannaeyjar]]

Leiðsagnarval