Verkamannabústaðir (við Urðaveg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 14:10 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2007 kl. 14:10 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Við Urðaveg 46-52 stóðu hús sem kölluð voru Verkamannabústaðir. Þetta voru fjögur tveggja hæða steinhús á kjallara í jarðhæð.

Einn verkamannabústaðurinn
Verkamannabústaðirnir í byggingu.
Kolbrún Harpa frá Hvoli með verkamannabústaðina í baksýn.
Kolbrún Þorsteinsdóttir sem bjó á efri hæð við Urðaveg 50 ásamt manni sínum Sverri og Þorsteini syni sínum
Sverrir Gunnlaugsson heldur þarna á syni sínum Þorsteini


Húsin fóru undir hraun 21. mars í gosinu 1973. Hafði hraunið ýtt þeim hverju á annað og hrundu þau þannig niður. Þessir íbúar voru í Verkamannabústöðunum þegar gaus:

  • Hús nr. 46

Í húsinu sem stóð við Urðaveg 46 bjó Finnbogi Már Gústafsson, hjónin Óli Þór Alfreðsson og Hrönn Þórðardóttir og börn þeirra Njörður og Ylfa og hjónin Óli Þór Ólafsson og Ingunn Bjarnadóttir og sonur þeirra Ólafur

  • Hús nr. 48

Í húsinu sem stóð við Urðaveg 48 bjuggu hjónin Kolbeinn Ólafsson og María Jóhanna Njálsdóttir,börn þeirra Valgeir Ólafur, Njáll, Dóra og Kolbrún. Hjónin Óskar Árnason og Kristín Þorsteinsdóttir og dóttir þeirra Laufey.

  • Hús nr. 50

Í húsinu sem sóð við Urðaveg 50 bjó Anna Mathiesen, Hjónin Jón Steindórsson og Elínborg Bernódusdóttir, börn þeirra Lára, Hinrik og Ölver og hjónin Sverrir Gunnlaugsson og Kolbrún Þorsteinsdóttir ásamt syni þeirra Þorsteini .

  • Hús nr. 52

Í húsinu sem stóð við Urðaveg 52 bjuggu hjónin Bernharð Ingimundarson og Fjóla Sigurðardóttir, börn þeirra Hávarður, Kristín og Ingimundur og hjónin Valur Oddsson og Kristín J Stefánsdóttir og dóttir þeirra Ingibjörg


Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson. Vestmannaeyjar - byggð og eldgos. Reykjavík: Ísafoldaprentsmiðja, 1973.
  • Íbúaskrá Vestmannaeyja 1. desember 1972.