Valdimar Ástgeirsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. júlí 2006 kl. 08:22 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. júlí 2006 kl. 08:22 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Valdimar Ástgeirsson fæddist í Litlabæ í Vestmannaeyjum þann 19. september 1898 og lést 26. júlí 1978. Hann var sonur Kristínar Magnúsdóttur og Ástgeirs Guðmundssonar bátasmiðs. Valdimar var kvæntur Þóroddu Loftsdóttur frá Uppsölum. Þau bjuggu lengst af í húsinu Bræðraborg en það fór undir hraun í Heimaeyjargosinu.