Valdimar Ástgeirsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. júlí 2012 kl. 10:17 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. júlí 2012 kl. 10:17 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Valli í Bæ.

Valdimar Ástgeirsson fæddist í Litlabæ í Vestmannaeyjum þann 19. september 1898 og lést 26. júlí 1978. Hann var sonur Kristínar Magnúsdóttur og Ástgeirs Guðmundssonar bátasmiðs. Valdimar var kvæntur Þóroddu Loftsdóttur frá Uppsölum. Þau bjuggu lengst af í húsinu Bræðraborg en það fór undir hraun í Heimaeyjargosinu.

Valdimar stundaði sjómennsku og var til að mynda eftirsóttur flatningsmaður. Hann var einnig mjög virkur í Leikfélagi Vestmannaeyja.

Ólafur Gränz og Valdimar leika í leikriti.

Myndir