Unnur Pálsdóttir (Túnsbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 09:34 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 28. júní 2007 kl. 09:34 eftir Daniel (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Unnur Pálsdóttir fæddist 3. mars 1911 og lést 12. maí 2000. Unnur bjó í húsinu Túnsberg við Vesturveg 22.

Unnur hóf störf á elliheimilinu Skálholti 17. maí 1966 og tók við starfi forstöðukonu tæpu ári síðar, þann 8. mars 1967. Hún gegndi því starfi til gossins árið 1973 en Skálholt fór undir hraun. Hún tók við starfi forstöðukonu Hraunbúða þegar það elliheimili var tekið í notkun 1. september 1974. Því gegndi hún í nær 5 ár.

Hún bjó síðustu ár ævi sinnar á Hraunbúðum.