Tryggvi Ólafsson (Garðhúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 14:54 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. júní 2006 kl. 14:54 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Tryggvi Ólafsson fæddist 8. ágúst 1911 í Garðhúsum í Vestmannaeyjum og lést 9. apríl 1985. Foreldrar hans voru Anna Vigfúsdóttir og Ólafur Jónsson sem bjuggu í Garðhúsum alla tíð. Árið 1939 kvæntist Tryggvi Þórhildi Stefánsdóttur. Bjuggu þau sér heimili við Helgafellsbraut. Eignuðust þau þrjá syni, Ólaf Tryggvason málarameistara í Vestmannaeyjum, Stefán Þór sem býr í Reykjavík og Sævar sem lést árið 2005.

Um fermingu fór Tryggvi að stunda sjómennsku, lengst af á Leó með Þorvaldi Guðjónssyni, síðan á Ver með Jóni Guðmundssyni í Miðey sem var aflakóngur 1946.

Einnig vann Tryggvi við verslunarstörf í versluninni Úrval sem stóð við Miðstræti en árið 1947 sneri hann sér alfarið að málarastörfum og varð meistari í þeirri grein.

Tryggvi var einn af fremstu knattspyrnumönnum Íþróttafélagsins Þórs og var hann virkur félagi í því íþróttafélagi.

Eftir gos settust Tryggvi og Þórhildur að í Kópavogi.



Heimildir

  • Guðjón Ármann Eyjólfsson. Minningargrein um Tryggva Ólafsson. Sjómannadagblað Vestmannaeyja. 1986.