Torfi Jóhannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 16:27 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 22. júní 2005 kl. 16:27 eftir Jonas (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Torfi Jóhannsson, bæjarfógeti 1950 til 1963. Fæddur 7. apríl 1906. Dáinn 10. apríl 1963. Foreldrar: Jóhann Lúther prófastur að Hólmum í Reyðarfirði Sveinbjarnarson bónda í Skáleyjum Magnússonar og seinni kona hans Guðrún Torfadóttir kaupmanns og útgerðarmanns á Flateyri Halldórssonar. Stúdent í Reykjavík 1925, cand. juris frá Háskóla Íslands 1930. Fulltrúi hjá Eggert Claessen hrl. 1930 til 1932 og settur skrifstofustjóri þar um tíma 1935, fulltrúi í Viðskiptaráðuneytinu 1939, skipaður í Viðskiptaráð 1945 og jafnframt skipaður verðlagsstjóri 1946 til 1950. Kona hans var Ólöf Jónsdóttir bónda í Seglbúðum í Landbroti Þorkelssonar. Áttu þau einn son, Kristján bæjarfógeta í Vestmannaeyjum, en eina dóttur, Svövu, átti Torfi með Sveinbjörgu Bjarnadóttur áður en hann giftist.