Tanginn

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 11:20 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 11:20 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Fiskbreiðsla

Húsið Tanginn við Strandveg 46. Það var verslun Gunnars Ólafssonar en var rifin þegar verslun reis við hliðina. Þar er verslunarhúsnæði enn þann dag í dag.

Verslun

Tanginn um 1880. Efst er sölubúð og íbúðarhús. Nýja húsið snýr norður og suður en salthúsið og lifrarbræðslan er nyrst.

Lóðina fékk myllusmiðurinn Johan Julius Frederik Birck, fyrir verslunarrekstur og stofnsetti verslunina Juliushaab árið 1845. Verslunina rak hann aðeins í nokkur ár og árið 1851 keypti N.N. Bryde verslunina handa tvítugum syni sínum, J.P.T. Bryde; jafnan kallaður Pétur Bryde. Árið 1879 lést faðir Péturs og erfði hann þá verslun föður síns, Garðsverzlun. Ekki var leyfilegt að einn einstaklingur ræki tvær verslanir og því hóf verslunarstjórinn Gísli Engilbertsson leigurekstur á Tanganum. Gísli rak verslunina til ársins 1893 en Pétur hafði gefið syni sínum verslunina árið 1889. Við versluninni tók, árið 1910, hópur manna við rekstrinum, Pétur Thorsteinsson, Gunnar Ólafsson og Jóhann Þ. Jósefsson. Verslunina nefndu þeir Gunnar Ólafsson & co.

Tangahúsið frá 1910. Tangahúsið frá 1846-1849 til vinstri


Nýi Tanginn

Nýi Tanginn stendur við Strandveg 48 og var reistur eftir gos eða um 1980 og var stækkað í norður nokkrum árum síðar. Elli Pé byggði húsið. Húsið hefur alla tíð hýst verslun og er nú Krónan þar til húsa.


Helstu atriði í eigenda- og íbúasögu Elli Pé byggir húsið



Heimildir

  • Jóhann Gunnar Ólafsson. Verslunarstaðir í Vestmannaeyjum. Gamalt og nýtt. Reykjavík. Víkingsprent
  • Strandvegur. Verkefni unnið af þátttakendum á námskeiðinu Húsin í götunni. Vestmannaeyjar, 2004.