Takið eftir því

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 13:09 eftir Jonas (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2005 kl. 13:09 eftir Jonas (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1940 1941 1942
Að standa sem hetjur
og starfa eins og lífið býður
sé stefna vor allra,
því tíminn frá oss líður.
Hvert sinn, er morgunn skín við skí
sé skylda dagsins ávallt ný ­
­takið eftir því.
En gleymum þó eigi,
að gleðin hún er lífsins stjarna,
sem gefur oss yndi
og ljóma slær á vegi farna.
Í Herjólfsdal með horskum gný
vér höldum þjóðhátíðarfrí,
já takið allir eftir því.
Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: Árni úr Eyjum