Sveinn Þórðarson (Löndum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. mars 2014 kl. 17:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. mars 2014 kl. 17:33 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Sveinn Þórðarson''' beykir á Löndum fæddist 18. febrúar 1827 á Felli í Mýrdal og lést 4. nóvember 1901 í Vesturheimi.<br> Foreldrar hans voru sr. Þórður Brynjó...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Sveinn Þórðarson beykir á Löndum fæddist 18. febrúar 1827 á Felli í Mýrdal og lést 4. nóvember 1901 í Vesturheimi.
Foreldrar hans voru sr. Þórður Brynjólfsson, f. 8. september 1763, d. 1. janúar 1840, og þriðja kona hans Solveig Sveinsdóttir húsfreyja, f. 21. september 1797, d. 22. júlí 1874.

Sveinn var með foreldrum sínum á Felli 1838, með þeim í Fagradal þar 1838-1847.
Hann fluttist til Eyja 1847, sigldi til Kaupmannahafnar 1850 frá Juliushaab og lærði beykisiðn, kom aftur 1853 og stundaði iðnina.
Þau Helga misstu tvö börn í frumbernsku.
Þau fóru til Utah 1878 frá Löndum með barnið Jón Júlíus Sveinsson og dóttir þeirra Solveig Þórdís Jórunn fór Vestur með fjölskyldu sína 1880.

Kona Sveins, (28. október 1854), var Helga Árnadóttir húsfreyja, f. 6. júlí 1833, d. 15. febrúar 1907 í Vesturheimi.
Börn þeirra hér:
1. Jóhanna Guðný Sveinsdóttir, f. 18. júlí 1855, d. 22. október úr „vatnssýki“.
2. Jóhanna Guðný Solveig Sveinsdóttir, f. 22. apríl 1857, d. 7. apríl 1857 úr ginklofa.
3. Solveig Þórdís Jórunn Sveinsdóttir, f. 24. apríl 1858, d. 6. apríl 1920 Vestanhafs. Hún var kona Árna Árnasonar yngri frá Vilborgarstöðum, sem fór Vestur.
4. Jón Júlíus Sveinsson, bar eftirnafnið Thorderson Vestanhafs, f. 1. desember 1872, d. 24. maí 1951. Hann fór til Utah með foreldrum sínum 1878.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.