Svala Johnsen (Suðurgarði)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. júlí 2012 kl. 10:45 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. júlí 2012 kl. 10:45 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Svala Johnsen fæddist 19. október 1917 í Vestmannaeyjum og lést 16. janúar 1995. Foreldrar hennar voru Margrét Marta Jónsdóttir og Árni J. Johnsen kaupmaður og bóndi í Suðurgarði. Eiginmaður Svölu var Ólafur Þórðarson rafvirkjameistari, fæddur í Reykjavík. Þau eignuðust þrjú börn, Árna Óla, Jónu og Margréti Mörtu en Ólafur átti einnig tvær dætur af fyrra hjónabandi.

Hjónin í Suðurgarði

Svala vann við margs konar störf um ævina. T.d. var hún ein fyrsta konan sem var kokkur á síldarbát á fimmta áratug síðustu aldar. Hún þótti hamhleypa til verka og um margra ára skeið reytti hún lunda í Suðurgarði, sem þótti afbragðs vara auk þess sem lundafiðursængur frá henni voru eftirsóttar. Síðustu ár starfsævi sinnar starfaði hún við ræstingar í Gagnfræðaskólanum og svo Framhaldsskólanum þegar hann var stofnaður.

Myndir