„Suðurey“: Munur á milli breytinga

Fara í flakk Fara í leit
2.075 bætum bætt við ,  4. nóvember 2005
Gísli Lárusson
Ekkert breytingarágrip
(Gísli Lárusson)
Lína 6: Lína 6:
Það er sagt bátfært í Suðurey þegar öldur brjóta ekki á sunnanverðri [[Hæna|Hænu]]; þar sem uppgangan er sunnan til á eynni og sést því ekki frá Heimaey.
Það er sagt bátfært í Suðurey þegar öldur brjóta ekki á sunnanverðri [[Hæna|Hænu]]; þar sem uppgangan er sunnan til á eynni og sést því ekki frá Heimaey.


==Úr örnefnaskrá [[Gísli Lárusson|Gísla Lárussonar]]==
III. '''Suðurey'''  liggur suðvestur af Heimaey, Stórhöfða – ca ¼ mílu. Er hún hömrum lukt á alla vegu, nema að sunnan. Þar er hún afhallandi í sjó niður, og grasivaxin svo langt sem sjór ekki nær. Fyrir ofan hallann er hryggur í austur og vestur, en norðan við hrygginn að brún er sléttlendi. Þykir eyjan vond til hagagöngu, ætluð 100 sauðum en nú á seinni árum aðeins 40-50. Fuglatekja hefir lítið verið stunduð þar seinni árin, áður höfðust ca 10.000 lundar og töluvert af svartfugl.
Á norðurjaðri eyjarinnar, fyrir miðju bergi er nefnt '''Vatn''' , en efst í berginu brík, nefnd '''Hella''' . Af þessum stað renndu fuglamenn oft færi í sjó niður og fiskuðu allskonar fisk, oft mikið (t.d. þorsk og lúðu). Hæðin 30 faðmar að sjó niður og 12-14 faðmar til botns. Vestan við Vatn er nefnd '''Skora''' , en þar vestur af '''Útnorðursnef''' ; en austan við Vatn '''Landnorðursnef''' . Þar suður af austan megin, er nefndur '''Hellir''' , hellismyndun í berginu. En ofar '''Kórar'''  og þar suður af '''Eiríksbæli''' , en '''Tobbafles''' þar upp af. Þar ofar '''Lend''' , neðst í henni '''Gamlarétt''' (bekkur), þar sunnar '''Landsuðursbæli''' . '''Landsuðursnef''' er nefnt þar suður af; er þar lendingarstaður, en tæp uppganga.
Hér suður af er sker í sjó út, '''Suðureyjarsker'''. Suðvesturnef eyjarinnar er nefnt '''Grasanef'''  og austan við það er aðaluppgangan á eyna, en mjög brimsamt. Fyrir norðan nefið er '''Suðureyjarhellir''' , en norður af honum '''Eggjanef'''  og þar norður af '''Mottukór'''  (motta notuð til þess að slá fyrir fuglinn). En upp af honum við brún er '''Hvannstóðarbæli'''  og þar upp af '''Hvannstóðsbekkur''' , en þar norður af '''Hvannstóð'''. Norður af því neðarlega í berginu er '''Strákakór'''.
{{Heimildir|
* [[Gísli Lárusson]]. Óútgefið '''Örnefni á Vestmannaeyjum'''. [http://www.ornefni.is Örnefnastofnun Íslands]
}}
[[Flokkur:Örnefni]]
[[Flokkur:Eyjur]]
[[Flokkur:Eyjur]]
[[Flokkur:Stubbur]]

Leiðsagnarval