Strembuhellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 15:04 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2005 kl. 15:04 eftir Sigurgeir (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Framan við efstu hús á Illugagötu má finna Strembuhelli, en hann er einnig kallaður Agðahellir. Hann stendur í Agðahrauni sem er suðvestan við Landakirkju.

Hellirinn er ekki mjög stór og ein manneskja í einu kemst rétt í hann á köflum. Tvö göt eru ofan í jörðina með nokkurra metra millibili, þar opnast svolítil hvelfing og er hægt að ganga á milli opanna. Hlaðin hefur verið grjótvarða svo að auðveldara sé að koma auga á hann. Hann fannst árið 1870 af fjárleitarmönnum.


Heimildir

  • Ferðabók F.Í. 1948 bls 119-124