Steinvör Ormsdóttir (Presthúsum)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. apríl 2014 kl. 22:28 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. apríl 2014 kl. 22:28 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Steinvör Ormsdóttir húsfreyja í Presthúsum fæddist 1762 á Vilborgarstöðum og lést 1. desember 1853.
Faðir hennar var líklega Ormur Jónsson bóndi á Vilborgarstöðum 1762, f. um 1724.
Systir hennar var Guðrún Ormsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ.

I. Barnsfaðir Steinvarar var Tómas Einarsson frá Selkoti. Barn þeirra var:
1. Andvana drengur fæddur 28. september 1787.

II. Steinvör var, (12. júlí 1789), 3. kona Nikuláss Gunnsteinssonar bónda í Presthúsum, f. 1744, d. 19. desember 1826.
Börn þeirra hér:
2. Andvana fæddur drengur 23. apríl 1790.
3. Margrét Nikulásdóttir, f. 18. október 1791, d. 24. október 1791 „af sóttveiki“.
4. Margrét Nikulásdóttir, f. 12. maí 1793, d. 17. maí 1793, 5 daga gömul úr ginklofa.
5. Ormur Nikulásson, f. 13. júní 1794, d. 25. júní 1794 úr ginklofa, tveggja vikna gamall.
6. Andvana stúlka, f. 20. október 1797.


Heimildir