„Steinunn Brynjúlfsdóttir (lífeindafræðingur)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
(Ný síða: thumb|200px|''Steinunn Brynjúlfsdóttir. '''Steinunn Brynjúlfsdóttir''' frá Breiðholti, húsfreyja, lífeindafræðingur fæddist þar...)
 
m (Verndaði „Steinunn Brynjúlfsdóttir (lífeindafræðingur)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 17. september 2018 kl. 11:04

Steinunn Brynjúlfsdóttir.

Steinunn Brynjúlfsdóttir frá Breiðholti, húsfreyja, lífeindafræðingur fæddist þar 30. september 1948 og lést 19. ágúst 2008.
Foreldrar hennar voru Brynjúlfur Jónatansson rafvirkjameistari, f. 23. júní 1924 og kona hans Lilja Þorleifsdóttir húsfreyja, f. 17. júní 1922, d. 4. september 2008.

Börn Lilju og Brynjúlfs:
1. Steinunn Brynjúlfsdóttir húsfreyja, nam sálfræði, lífeindafræðingur, f. 30. september 1948, d. 19. ágúst 2008.
2. Ragnheiður Brynjúlfsdóttir húsfreyja, viðskiptafræðingur, skrifstofustjóri, f. 22. febrúar 1952, d. 4. júlí 2011.
3. Hjálmar Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 22. mars 1953.
4. Jónatan Brynjúlfsson rafvirkjameistari, f. 11. mars 1954, d. 17. mars 1984.
5. Anna Brynjúlfsdóttir starfsmaður á röntgenstofu Domus Medica, f. 13. júlí 1955.
6. Rúnar Páll Brynjúlfsson skrifstofumaður, tæknimaður hjá Valitor, f. 9. ágúst 1958.
7. Brynhildur Brynjúlfsdóttir húsfreyja, starfsmaður hjá Arionbanka, f. 10. janúar 1960.
Fósturdóttir hjónanna er
8. Steinunn Jónatansdóttir hjúkrunarfræðingur, vinnur að doktorsprófi í Kanada, f. 20. september 1973. Hún er dóttir Jónatans Brynjúlfssonar og konu hans Árnýjar Sigríðar Baldvinsdóttur húsfreyja, f. 29. nóvember 1955, d. 19. maí 1979.

Steinunn var með foreldrum sínum í æsku. Hún lauk landsprófi frá Gagnfræðaskólanum, nam við Menntaskólann á Akureyri og var stúdent þaðan 1967. Fyrstu árin á eftir kenndi hún m.a. við Gagnfræðaskólann í Eyjum og Barnaskóla Austurbæjar, auk þess sem hún vann skrifstofustörf í þessum skólum.
Hún nam sálfræði við Háskóla Íslands 1971 til 1974.
Vorið 1975 flutti fjölskyldan frá Reykjavík til Eyja og bjó á Illugagötu 41. Steinunn starfaði m.a. í útibúi Útvegsbankans og í fyrirtæki föður síns, Neista s.f.
Árið 1981 flutti fjölskyldan í Garðabæ og 1982 hóf Steinunn nám í meinatækni, (lífeindafræði) við Tækniskólann. Eftir útskrift 1985 sérhæfði hún sig í krabbameinsrannsóknum hjá prófessor Gunnlaugi Geirssyni lækni og vann við þær hjá Krabbameinsfélagi Íslands um árabil, auk starfa fyrir Rannsóknarstofu Háskóla Íslands.
Árið 1994 aðstoðaði hún Gunnlaug Geirsson við stofnun Frumurannsóknarstofunnar í Glæsibæ og vann þar síðan við krabbameinsleit.
Þau Halldór giftu sig 1968. Þau eignuðust tvö börn og gerðu Brynjúlf son Jónatans bróður Steinunnar að kjörbarni sínu, þegar móðir hans lést 1979. Steinunn lést 2008. Halldór býr í Garðabæ.

I. Maður Steinunnar, (1. júní 1968), var Halldór Guðbjarnason fyrrv. bankastjóri, forstjóri VISA Íslands, f. 20. október 1946 á Ísafirði.
Börn þeirra:
1. Lilja Dóra Halldórsdóttir húsfreyja, lögfræðingur, MBA, forstjóri, f. 4. desember 1967. Maður hennar er Jónas Fr. Jónsson.
2. Elín Dóra Halldórsdóttir húsfreyja, BA-sálfræðingur, MSc í fjármálum fyrirtækja, viðskiptastjóri, f. 12. desember 1975. Maður hennar er Atli Knútsson.
Kjörbarn hjónanna:
3. Brynjúlfur Jónatansson íþróttafræðingur, verslunarmaður, leiðsögumaður, f. 1. janúar 1977. Hann var sonur Jónatans Brynjúlfssonar rafvirkjameistara og konu hans Árnýjar Sigríðar Baldvinsdóttur húsfreyja, f. 29. nóvember 1955, d. 19. maí 1979.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.