Snið:Grein vikunnar

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 15:35 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 5. júlí 2007 kl. 15:35 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Skaftfellingur VE-33 var vöruflutningaskip sem lengst af var gert út frá Vestmannaeyjum en einnig nýtt til fiskveiða. Það var án efa eitt frægara sjóskip Vestmannaeyja fyrr eða síðar. Það var smíðað árið 1918 fyrir hlutafélag sem stofnað var um strandsiglingar til Víkur og Vestur-Skaftafellssýslu.

Skaftfellingsfélagið var stofnað um smíði og rekstur vélbáts til vöruflutninga við suðurströnd Íslands, og eftir stofnfund sem boðaður var af Sigurjóni Markússyni þann 7. febrúar 1917 þar sem þrettán fulltrúar mættu, kjörnir úr öllum hreppum sýslunnar og austan úr Öræfum, var stofnfé safnað, 30.225 kr, sem þótti töluverð upphæð á þeim tíma. Skaftfellingur kostaði um 70-80 þúsund krónur í smíði og heimflutningi.

Lesa meira...