„Snið:Gosannáll“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 28: Lína 28:
* '''8. mars''': Hraun hefur runnið að [[Skansinn|Skansi]] og [[Grænahlíð|Grænuhlíð]]. Flakkarinn ferðast um 200 metra á dag og er 370 metra frá hraunkantinum. Öskufall er í Landeyjum.
* '''8. mars''': Hraun hefur runnið að [[Skansinn|Skansi]] og [[Grænahlíð|Grænuhlíð]]. Flakkarinn ferðast um 200 metra á dag og er 370 metra frá hraunkantinum. Öskufall er í Landeyjum.
* '''13. mars''': Hraunið rennur nú mest í suðaustur hjá Flugnatanga. Hraunkanturinn víða 30-40 m hár. Dæluskipið Hákur fengið til að dæla sjó á hraunið.
* '''13. mars''': Hraunið rennur nú mest í suðaustur hjá Flugnatanga. Hraunkanturinn víða 30-40 m hár. Dæluskipið Hákur fengið til að dæla sjó á hraunið.
* '''15. mars''': Gasmengun hefr aukist og er mest í [[Dauðadalur|Dauðadalnum]]. 425 manns í Eyjum.
* '''15. mars''': Gasmengun hefur aukist og er mest í [[Dauðadalur|Dauðadalnum]]. 425 manns í Eyjum.
* '''21. mars''': Hin vatnsleiðslan talin vera að gefa sig. Eyjamenn sækja vatn í brunna. Gasmengun minnkandi.
* '''21. mars''': Hin vatnsleiðslan talin vera að gefa sig. Eyjamenn sækja vatn í brunna. Gasmengun minnkandi.
* '''22. mars''': Hrauntunga, 150 m breið, rennur á bæinn norðvestanverðan og stöðvast vð Heimagötu.
* '''22. mars''': Hrauntunga, 150 m breið, rennur á bæinn norðvestanverðan og stöðvast vð Heimagötu.

Útgáfa síðunnar 15. júlí 2005 kl. 15:59

Gosannáll

  • 23. janúar: Eftir jarðskjálftakippi hefst eldgos í Heimaey kl. 1:40 um nóttina. Allir íbúar fluttir á brott utan 250-300 manns.
  • 24. janúar: Eldur í Kirkjubæ. Logandi hnullungar kveikja í húsum. Mikið gos og sprengingar. Nýtt fjall verður til. Gosmökkur í 8-9 km hæð.
  • 25. janúar: Ýmis konar starfsemi fyrir Eyjafólk í Hafnarbúðum á Höfuðborgarsvæðinu. Erfitt að fá leyfi til Eyjaferða, aðeins vísindamenn og ljósmyndarar fá landgöngu.
  • 26. janúar: 17 hús brenna. Vélbátar í Eyjum í stöðugum búslóðaflutningum milli Eyja og Þorlákshafnar. Gaus í Stakkabót og gossprungan þá 3 km löng.
  • 27. janúar: 20 hús brunnin. 70 hús undir ösku og vikri. Hiti í höfninni um 15 gráður.
  • 30. janúar: Búið að tæma nær öll hús austan Skólavegar. 150 hús brunnin og sokkin. Vont veður þegar vinnuflokkar moka vikur af húsþökum, negla fyrir glugga og bjarga eignunum.
  • 31. janúar: Öll stjórnsýsla flutt til Reykjavíkur. Búið að negla fyrir glugga 900 húsa.
  • 1. febrúar: Talið að þurfi allt að þúsund manns til að moka af húsþökum í Eyjum. 500 manna vinnuflokkur kemur til starfa. Eyjabátarnir koma með afla í aðrar hafnir á landinu.
  • 3. febrúar: Fiskimjöldverksmiðjan byrjar móttöku á loðnu til vinnslu.
  • 4. febrúar: Karl Sigurbjörnsson vígður sóknarprestur til Vestmannaeyjasóknar og nefndur eldklerkur. Einkennilegar aðstæður fyrir nývígðan prest. Mötuneyti í Ísfélaginu fyrir 1000 manns. Hraun fer að renna í innsiglinguna af miklum krafti en dróg úr því 9. febrúar.
  • 5. febrúar: Lokað fyrir 14 þúsund glugga og mokað af um þúsund þökum.
  • 6. febrúar: Háspennulínan til Eyja slitnaði og önnur vatnsleiðslan rofnaði. Reynt að byggja varnargarða og dæla sjó hraunið.
  • 7. febrúar: Lög nr. 4 um neyðarástand vegna jarðelda á Heimaey samþykkt á Alþingi.
  • 8. febrúar: Skólabörn úr Eyjum nú á 36 stöðum á landinu.
  • 9. febrúar: Heimaey hefur stækkað um 2 ferkílómetra.
  • 10. febrúar: Gagnfræðaskóli Vestmannaeyja tekinn til starfa í Laugalækjarskóla.
  • 14. febrúar: Þorrablót í Samkomuhúsinu, 500 blótuðu Þorra. Gas gerir mönnum lífið leitt.
  • 16. febrúar: Þak bókasafnshússins féll vegna vikurþunga. Bækur fluttar í Gagnfræðaskólann. Frostskemmdir í 10. hverju húsi.
  • 17. febrúar: Flutningar hefjast með Hercules flugvélum. Lögreglan flýr lögreglustöðina. Mikil gashætta.
  • 20. febrúar: Bærinn í stórhættu. Eldfellið hefur skriðið niður í bæinn.
  • 21. febrúar: Miklum varnarvegg komið fyrir til varnar bænum. Hraunið komið hálfa leið til Bjarnareyjar.
  • 24. febrúar: 64 hús hurfu á 8 klukkustundum. Birgðir og atvinnutæki flutt úr verslunum
  • 25. febrúar: Hraunrennslið stöðvast í bili. Loðnu landað úr 6 bátum.
  • 27. febrúar: 400 hús talin eyðilögð eða skemmd. Á sjötta hundrað Eyjamenn hafa sótt um að búa í innfluttu Viðlagasjóðshúsunum. 492 manns eru í Eyjum.
  • 2. mars: Um 300 metrar ruddir út á nýja hraunið, á köflum glóandi, til þess að koma þangað vatnsleiðslum til hraunkælingar. Kaupfélagið opnar sölubúð á Hólagötu.
  • 8. mars: Hraun hefur runnið að Skansi og Grænuhlíð. Flakkarinn ferðast um 200 metra á dag og er 370 metra frá hraunkantinum. Öskufall er í Landeyjum.
  • 13. mars: Hraunið rennur nú mest í suðaustur hjá Flugnatanga. Hraunkanturinn víða 30-40 m hár. Dæluskipið Hákur fengið til að dæla sjó á hraunið.
  • 15. mars: Gasmengun hefur aukist og er mest í Dauðadalnum. 425 manns í Eyjum.
  • 21. mars: Hin vatnsleiðslan talin vera að gefa sig. Eyjamenn sækja vatn í brunna. Gasmengun minnkandi.
  • 22. mars: Hrauntunga, 150 m breið, rennur á bæinn norðvestanverðan og stöðvast vð Heimagötu.
  • 23. mars: Hraun rann með miklum látum vestur að Heimagötu og kveikti hitinn í húsum. 70 hús hurfu undir hraunið á fáum klukkustundum.
  • 26. mars: Hraun fer enn að renna og 30 hús fara undir hraun. Vatnsleiðslan komin í sundur. Rafstöðvarhúsið farið undir hraun. Mörg gömul og merk hús fara undir hraun, t.d Brydeshús, sundlaugin, Godthåb, bankahúsið gamla og verslun Haralds Eiríkssonar. Gaseitrun hætulega mikil.
  • 27. mars: Reglugerð um Viðlagasjóð, nr. 62, kom út í dag. 270 hús farin í hraun og vikur.
  • 28. mars: Hraun rann niður Formannabraut, bókasafnshúsið undir hraun sl. nótt. Stórvirkar véldælur frá Bandaríkjunum koma.
  • 29. mars: Vonskuveður með 7-8 stiga frosti og byl. 30 skip leita hafnar. Hraunið komið inn í Fiskiðju og Ísfélag.
  • 30. mars: Stórt fiskhús í eigu Ísfélagsins í rúst. Háþrýstidælur og vatnsmagn eykst um 50%. Hraun virðist vera að stöðvast niðrundir bryggju.
  • 2. apríl: Lítil breyting á gosinu. Dælt af krafti á hraunið.
  • 4. apríl: Um hádegi gaus kolsvörtum öskumekki. Harðinn í hrauntröðinni minnskar.
  • 5. apríl: Hraunrennsli ekkert og engin gosmengun.
  • 6. apríl: Sóleyjargata hreinsuð, grafið 4-5 m niður á tvö hús og var annað nánast óskemmt. Gosvakt austur á hrauni.
  • 11.-16. apríl: Tvær götur hreinsaðar Heiðarvegur og Fjólugata. Dælt á hraunið af krafti. Hraun rennur neðansjávar til sjávar. Lundinn sést fyrst 13. apríl.
  • 17.-23. apríl: Litlar breytingar á hrauninu. Öðru hverju há öskugos. Fiskimjölsverksmiðjan bræddi loðnu.
  • 24. apríl: Hraun rann með 60 m hraða í þröngum farvegi austur, hægði svo á sér.
  • 25. apríl: Mikill hiti í húsum við Kirkjubæjarbraut, viður svið og málning flettist af. Einhverjir hafa sett niður kartöflur.
  • 30. apríl: Engar sérlegar breytingar á gosinu , sem er oftast kraftlítið.
  • 1. maí: Hátíðarhöld. Sigurður Guðmundsson flutti ræðu, knattspyrnuleikur og kvikmyndir sýndir. 7 menn hafa sótt um byggingarlóðir í Eyjum.
  • 5. maí: Stjórn Viðlagasjóðs samþykkir að hefja hreinsun af krafti. Vinna á 10 klst. vöktum. Skal vera lokið um áramót. 226 skráðir hér.
  • 23. maí: Bæjarráð samþykkir að Félagsheimilið verði notað sem tómstundaheimili þeirra sem eru við störf í Eyjum.
  • 26. maí: Sjór kraumar og vísbendingar um neðansjávargos inn við Ál.
  • 1. júní: Fyrsti bæjarstjórnarfundurinn í Eyjum eftir gos. Línurnar lagðar um uppbyggingu og hreinsun.
  • 5. júní: Almannavarnarnefnd tilkynnir að þeir sem áttu lögheimili í Eyjum 23. janúar megi fara þangað frjálsir ferða.
  • 3. júlí: Almannavarnarnefnd Vestmannaeyja tilkynnirað gosið sé hætt að áliti sérfræðinga. Fjölskyldur koma heim og uppbygging samfélagsins hefst.