Snæbjörn Björnsson (Ofanleiti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:37 eftir Skapti (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. júní 2005 kl. 16:37 eftir Skapti (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Snæbjörn Björnsson, 1825 til 1827. Hann var fæddur 12. maí árið 1800 að Hítardal. Foreldrar hans var séra Björn Benediktsson í Hítardal og kona hans Solveig Ásgeirsdóttir prests að Stað í Steingrímsfirði, Jónssonar. Varð stúdent frá Bessastaðarskóla. Síðan í þjónustu Sigurðar landfógeta Thorgrimsens í þrjú ár og tvö ár í þjónustu Ólafs sýslumanns Finsen. Tók prestvígslu 1825 og fékk veitingu fyrir Ofanleiti 1826, en andaðist þar eftir rúmlega eins árs prestþjónustu, í byrjun árs 1827. Kona hans var Ingibjörg Jakobsdóttir í Kaupangi, Þorvaldssonar og áttu þau þrjú börn. Ingibjörg giftist seinna Jónasi Vestmann, bónda og smið að Vesturhúsum í Vestmannaeyjum.


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.