Skjaldbreið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 09:38 eftir Johanna (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. júlí 2007 kl. 09:38 eftir Johanna (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Húsið Skjaldbreið stóð við Urðaveg 36. Sigurður Ingimundarson lét reisa húsið og hófst bygging þess árið 1908. Yfirsmiður við byggingu hússins var Guðmundur Magnússon á Goðalandi. Haustið 1908 fauk það sem búið var að byggja af húsinu af grunni þess en með hjálp góðra manna, s.s. Gísla J. Johnsen, var það endurreist. Sumarið 1909 var húsið fullbyggt og Sigurður og hans fjölskylda fluttu inn í húsið.

Sigurður var mikill útgerðarmaður og var margt um manninn í húsinu á veturna. Í stofum hússins voru gjarnan haldnin danssamkvæmi með harmóníkuspili.

Húsið brann til kaldra kola aðfaranótt föstudags 16. febrúar í gosinu 1973 áður en hraunið náði upp að því og jafnaði það við jörðu. Mikið eldhaf var þegar kviknaði í því og átti slökkviliðið í miklum erfiðleikum með að bjarga nálægum húsum.


Heimildir