Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 1975/Vélstjóranámskeið í Vestmannaeyjum árið 1937

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 25. júlí 2016 kl. 11:37 eftir Mardis94 (spjall | framlög) Útgáfa frá 25. júlí 2016 kl. 11:37 eftir Mardis94 (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Velstjóranámskeið í Vestmannaeyjum árið 1937


Bókleg kennsla á námskeiðinu fór fram uppi á lofti í húsinu Bifröst við Bárugötu. Egill Símonarson frá Miðey, nú endurskoðandi í Reykjavík, kenndi íslenzku, Friðrik Lesson kenndi sund, en bókleg og verkleg vélfræðikennsla var á höndum Guðmundar.

Verkleg kennsla var í smiðju Einars Magnússonar (föður Markúsar veðurfræðings). En smiðja Einars var í sama húsi og verzlunin Framtíðin var síðast í, norðan við gömlu Rafstöðina. Öll fóru hús þessi undir hraun.

Kennt var á June Munktell glóðarhausavélar, tvígengisvélar, tvær 35 hestafla vélar og eina 50 hestafla vél. Einnig var kennt á 25-30 hestafla Tuxhamvél, sem einnig var tvígengisvél. Var þetta með því fyrsta, sem tvígengisvélar voru hér í flotanum, því að áður voru aðallega fjórgengis Dan-vélar í bátum. Námskeiðið stóð í um það bil þrjá mánuði; frá 1. október til jóla, og var eins og önnur námskeið í vélgæslu á þessum árum á vegum Fiskifélags Íslands.

Prófdómarar voru Ólafur heitinn Ólafsson í Magna og Arthur Aanes. Veitti prófið 50 hestafla réttindi, sem síðar hækkuðu upp.

Vélstjóranámskeið í Vestmannaeyjum 1937. Efsta röð, talið frá vinstri: Magnús Ágústsson, Markús Jónsson Ármóti, Guðmundur Þorvaldsson forstöðumaður frá Ísafirði, Bóas Jónsson frá Reyðarfirði, Ottó Hannesson Hvoli. - Önnur röð talið frá vinstri: Húnbogi Þorkelsson Sandprýði, Aðalsteinn Indriðason, Friðrik Jesson Hól kennari, Guðjón Kristinsson Hólmgarði (síðar Miðhúsum og Hvoli). - Þriðja röð: Júlíus Ingibergsson Hjálmholti, Alfreð B. Þorgrímsson Vesturvegi, Egill Símonarson Miðey, kennari, Einar Sigurjónsson Vestm.eyjum, Þorsteinn Stefánsson, Sigurjón Jónsson Vestm.eyjum.- Fjórða og neðsta röð: Þórhallur Ágústsson, Björn Kristjánsson Vestm.eyjum, Jónas Jónsson Reyðarfirði, Valgeir Ólafsson Vestm.eyjum, Sveinn Jónatansson.