Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Pössum okkur að segja ekki of mikið

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 1. mars 2018 kl. 14:12 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 1. mars 2018 kl. 14:12 eftir Valli (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
GYLFI BIRGISSON í viðtali um blogs sjómanna:


Pössum okkur að segja ekki of mikið


- En gerum óspart grín að sjálfum okkur


Nettenging skipa varð að veruleika fyrir ekki svo mörgum árum síðan en það hefur haft í för með sér gríðarlegar breytingar fyrir sjómenn og fjölskyldur þeirra. Samband sjómanna við sína nánustu er í mun öruggari farvegi nú en áður þegar talstöðvasamband var það eina sem tengdi áhafnir við umheiminn. Þetta hefur ekki síst haft mikið að segja fyrir þá sem eru í löngum túrum, eins og þeir sem róa á kolmunna og í norsk-íslensku síldina, að ótöldum frystitogurunum. Samband í gegnum gervihnött hefur gert þaö aö verkum aö nú geta sjómenn hringt án teljandi fyrirhafnar í sína nánustu án þess aö allir geti heyrt hvað fer þeim á milli, nú eða sest fyrir framan tölvuskjáinn og „spjallaö44 viö fólkið sitt á msn. Einn anginn af betri nettengingu sjómanna er blogg. í dag er varla til sú áhöfn sem ekki heldur úti bloggsíðu enda virðast sjómenn lesa síður hver annars og er stundum skotið fast á milli skipa. Ein fyrsta áhöfnin til að tileinka sér bloggið var áhöfnin á Hugin VE en Gylfi Birgisson var einn þeirra sem komu bloggsíðu áhafnarinnar af staö.

Gleðilegt sumar! og við erum á leið til Eyja Við fengum góð tvöhundruð tonn í gœrkvöldi og erum því komnir með rúm 1.200 tonn sem dugar til heimferðar, þar sem það er ekki til kvóti fyrir meiru. 

Það var komin skítabrœla á okkur og var svo í nótt, en það var hœgara með morgninum og er aftur von á skœlingi í dag. Þó verður að segjast eins og er að þessi elska getur oltið eins og korktappi þegar hún er vel hlaðin þó veður og sjólag sé ekki í takt við þœr veltur. Því eru lappa- og mjaðmaœf- ingarþœr einu sem við stundum vœntanlega á þessu heimstími.
http://alseyve2.12 3. is/
Nógu öflugt samband fyrir bloggið „Þegar ég byrjaði á Hugin í október 2006, þá var netið tiltölulega nýkomið um borð í gegnum gervi- hnött. Það var smávinna sem beið mín eftir að ég kom um borð í tengslum við netið og tölvurnar. En strákarnir höfðu heyrt af einhverju skipi sem væri aé blogga og ég spurði bara Hugin hvernig honum litisi á að opna bloggsíðu. Hann tók strax vel í það og ég stofnaði fyrstu síðuna. Eg var fyrst að blogga einn en fljótlega tóku aðrir við. Johnny Berry var góður í þessu og duglegur að færa fólkinu heima fréttirog fleiri auðvitað líka. Við prófuðum síðan að hanna og opna okkar eigin síðu en hún þótti bara of þung. Netsambandið úti á sjó er auðvitað ekkert rosalega öflugt en nógu öflugt fyrir einfaldar bloggsíður. Vií

færðum okkur því aftur yfir á 123.is og það er í raun þriðja síðan seni við erum á.“ Gríðarleg viðbrögð „Við áttum auðvitað aldrei von á þeim þvílíku viðbrögðum sem við fengum. Heimsóknirnar inn I ásíðuna voru margfalt fleiri en við áttum von á og þá sáum viö hvað þetta er góð og mikilvæg viðbót við líf sjómannsins. Þarna fær fólkið í landi frétt- irheim milliliðalaust og getur fylgst með lífinu um boró. Auk þess höfum við gervihnattasímann, sem errosalegt öryggi og gott að geta hringt hcim hve- nærsem er. Auk þess cr visst öryggi að komast inn á heimabankann og msn til aö taka þátt í rekstri heim- ilisins og vera í sambandi við sína nánustu. Þetta er gríðarleg breyting fyrir sjómenn, ekki síst fyrir þásem eru lengi úti í einu. Nettengingin er upp á 256 kílóbit á sekúndu sem er fínt fyrir okkur. Við náum ekkert að streyma sjónvarpið inn hjá okkur en viðnáum útvarpi, getum haldið úti bloggi og farið á netið.44 Geruni mest grín að sjálfum okkur Gylfi segir færslurnar á bloggsíðunum misjafnar milli áhafna. „Við höfum alltaf verið með okkar

síðu svona, gerum mest grín að okkur sjálfum og látum fylgja með hvernig gengur. Þetta var ekkert meðvituð ákvörðun heldur fór þetta bara í þcnnan jarðveg. Eyjamenn geta ekkert verið eitthvað form- lcgir, það verður alltaf að vera eitthvað grín í þessu líka. En menn mega líka passa sig að segja ekki of mikið, það eru víst fleiri en okkar nánustu að fyl&j- ast með, jafnvel önnur skip á sömu veiðum,44 sagði Gylfi og glotti. Herrakvöld ÍB V Góðan og hlessaðan daginn Við strákarnirfórum á HerrakvöldIBVígœr og ég held hara að við höfitm staðið okkur eins og hetjur. Þetta var virkilega flott kvöld hjá knattspyrnudeildinni, góður matur og fin- asta dagskrá. Við tókum þátt i uppboðum og vorum virkir í happdrœttinu og var stefna sett á að vinna þá ómetanlegu ferð með Gunna Ella Pé og Tohba Villa út í Brand en viðfeng- um alla aðra vinninga að ég held þannig að viðforum ekki út í Brandinn. http://www. huginn. is/ Endar þetta með því að sjómenn verða meira eða minna á netinu þegar þeir eru ekki í vinnu? „Já, ef það er ekki orðið þannig í dag,“ segir Gylfi og hlær. „Það eru auðvitað miklir möguleikar í net- tengingunni. Hún er hæg í dag, bandvíddin á bara eftir að stækka með tilheyrandi þægindum. Reyndar getum við tvöfaldað hana í dag en það kostar fárán- legar upphæðir. Aðbúnaður um borð er mjög góð- ur, tenglar í öllum klefum eins og er í flestum nýrri skipum. Ég gæti trúað að þetta sé mikil breyting íyrir þá sem hafa verið lengi á sjó og náðu stundum að komast í talstöðvasamband við fólkið sitt heima. Núna er sama hvar við erum, það er alltaf hægt að taka upp tólið og hringja heim. Ég var einmitt að skoða hversu langt sambandið nær hjá okkur og það nær á öllum þeim hafsvæðum sem við veiðum á.“ Vélar lagaðar um borð úr landi Eins og gefur að skilja eru menn farnir að nýta sér nettenginguna við vinnslu skipsins. „Sem dæmi erum við með Baader vélar um borð hjá okkur. Það eru tölvur í þeim og nú erum við búnir að nettengja þessar tölvur. Þannig að ef eitthvað kemur upp á eða bilar í þessum vélum, þá geta menn í Iandi tengst Baader vélunum og gert þaö sem þarf að gera. Svona á bara eftir að aukast í framtíðinni eins og allt sem tengist þessum tölvum,“ sagði Gylfi að lokum. Júlíus G. Ingason Síldveiðar í Vestmannaeyjahöfn Arið 1959 voru bátar að kasta á sild í Vest- mannaeyjahöfn, þar á meðal var spýtu Huginn ogfleiri bátar, allt litlir trépungar eins og maður kallaði þá og sigldu þeir með aflann til Grindavíkur og Reykjavíkur af einhverjum ástœðum sem ég þekki ekki, œtli dótið hafi ekki verið eitthvað bilað hérna í Eyjum. En síðan eru liðin mörg ár, 50 til að vera nákvœmur en í gœr þann 18. mars 2009 köstuðum við á síld hér í höfninni, tókum tvö köst og aflinn um 550 tonn ogfór í brœðslu hér en heimstímið var ekki mjög langt eða um ein og hálf mínúta. http://kap. 12 3. is/




Blogg áhafna/skipa: http://adalsteinnjonsson.blog.is/blog/adalsteinnjonsson/ - Aðalsteinn Jónsson SU http://alseyve2.123.is/ - Álsey VE http://amarhul. 123.is/ - Arnar HU http://asgrimursf.123.is/ - Ásgrímur Halldórsson SF http://www.birtingur.blog.is/blog/birtingur/ - Birtingur NK http://bjamiolafssonak.123.is/ - Bjarni Olafsson AK http://faxire9.123.is/ - Faxi RE http://www.gin.is/ - Guðmundur í Nesi RE http://gudmundurve.net/blogg/ - Guðmundur VE http://www.hakonea.blog.is/blog/hakonea/ - Hákon EA http://hoffellsu80.123.is/-Hoifell SU-80 http://www.huginn.is/ - Huginn VE http://jonkjartansson.blog.is/ - Jón Kjartansson SU http://krossey.123.is/ - Jóna Eðvalds SF http://jubbinn.123.is/ - Júpíter ÞH http://kap.123.is/ - Kap VE http://lundey.123.is/ - Lundey NS http://margretea.123.is/ - Margrét EA http://sighvaturbjamasonve.123.is/ Sighvatur Bjamason VE http://thorsteinnth.blog.is/ - Þorsteinn ÞH SJÓMANNADAGSBLAÐ VESTMANNAEYJA